Varnarmaðurinn Daníel Leó Grétarsson átti flottan leik í 3-0 sigri SönderjsykE á Bröndby í meistarariðli dönsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Daníel Leó og félagar voru að vinna fyrsta leik sinn síðan deildinni var skipt í tvo hluta.
Hann lék allan leikinn í vörn liðsins sem er nú með 41 stig, en þó áfram í botnsætinu á markatölu. Bröndby er í sætinu fyrir ofan með jafnmörg stig en betri markatölu.
Nóel Atli Arnórsson lék allan leikinn með Álaborg í 1-1 jafntefli gegn Koge í fallriðli dönsku B-deildarinnar. Álaborg er í efsta sæti riðilsins með 41 stig.
Róbert Frosti Þorkelsson spilaði allan leikinn með GAIS í 2-2 jafntefli gegn Gautaborg. Kolbeinn Þórðarson var ekki með Gautaborg vegna meiðsla. Gautaborg er með þrjú stig en GAIS aðeins tvö stig.
Davíð Snær Jóhannsson og Ólafur Guðmundsson byrjuðu hjá Álasundi sem gerðu 1-1 jafntefli við Kristiansund. Júlíus Mar Júlíusson spilaði allan leikinn með Kristiansund en Hrannar Snær Magnússon ónotaður varamaður. Kristiansund er í 7. sæti með 7 stig en Álasund í neðsta sæti með 3 stig.
Viðar Ari Jónsson lék klukkutíma í 2-1 sigri Ham/Kam gegn Start. Ham/Kam er með 9 stig í 6. sæti.
Davíð Kristján Ólafsson lék þá allan leikinn með AEL Larissa í 1-0 tapi gegn Panseirraikos í fallriðli grísku úrvalsdeildarinnar. Larissa er á botninum með 24 stig þegar fimm umferðir eru eftir.





