Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 18:09
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Dortmund tryggði Meistaradeildarsætið
Fabio Silva gerði fjórða mark Dortmund
Fabio Silva gerði fjórða mark Dortmund
Mynd: EPA
Borussia Dortmund tryggði í kvöld Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð með því að vinna Freiburg, 4-0, á heimavelli sínum í Dortmund.

Dortmund-menn gerðu út um leikinn á fyrsta hálftímanum. Max Beier gerði fyrsta markið á 8. mínútu eftir að hafa tekið á móti langri sendingu fram völlinn og sett hann í netið úr þröngu færi.

Serhou Guirassy tvöfaldaði forystuna sex mínútum síðar með marki af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá hægri áður en Ramy Bensebaini stangaði hornspyrnu í netið á 31. mínútu.

Fabio Silva skoraði fjórða og síðasta markið nokkrum mínútum fyrir leikslok til að endanlega tryggja Meistaradeildarsætið, en Dortmund er í öðru sæti með 67 stig, tíu stigum meira en Hoffenheim sem er í 5. sætinu. Freiburg er í 8. sæti með 43 stig.

Stuttgart og Werder Bremen gerðu 1-1 jafntefli. Jens Stage kom gestunum yfir á 18. mínútu en Ermedin Demirovic bjargaði stigi fyrir Stuttgart hálftíma fyrir leikslok. Stuttgart er í 4. sæti með 57 stig og varð af stigum í Meistaradeildarbaráttunni á meðan Bremen er í 12. sæti með 32 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Stuttgart 1 - 1 Werder
0-1 Jens Stage ('18 )
1-1 Ermedin Demirovic ('61 )

Borussia D. 4 - 0 Freiburg
1-0 Maximilian Beier ('8 )
2-0 Serhou Guirassy ('14 )
3-0 Ramy Bensebaini ('31 )
4-0 Fabio Silva ('87 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 31 26 4 1 113 32 +81 82
2 Dortmund 31 20 7 4 65 31 +34 67
3 RB Leipzig 31 19 5 7 62 38 +24 62
4 Stuttgart 31 17 6 8 63 43 +20 57
5 Hoffenheim 31 17 6 8 61 45 +16 57
6 Leverkusen 31 16 7 8 62 42 +20 55
7 Frankfurt 31 11 10 10 56 58 -2 43
8 Freiburg 31 12 7 12 44 52 -8 43
9 Augsburg 31 10 7 14 39 55 -16 37
10 Mainz 31 8 10 13 39 49 -10 34
11 Gladbach 31 7 11 13 36 50 -14 32
12 Werder 31 8 8 15 36 54 -18 32
13 Union Berlin 31 8 8 15 35 55 -20 32
14 Köln 31 7 10 14 45 53 -8 31
15 Hamburger 31 7 10 14 34 50 -16 31
16 St. Pauli 31 6 8 17 26 53 -27 26
17 Wolfsburg 31 6 7 18 41 66 -25 25
18 Heidenheim 31 5 7 19 35 66 -31 22
Slapp
banner
banner
banner