Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Frábær innkoma hjá Hólmberti
Mynd: Gwangju FC
Hólmbert Aron Friðjónsson kom sterkur inn af bekknum þegar Gwangju FC tapaði 5-2 gegn Anyang í suður kóresku deildinni í morgun.

Gwangju var 3-0 undir í hálfleik en Hólmbert kom inn á í hálfleik og Gwangju minnkaði muninn í 3-2 og Hólmbert lagði upp bæði mörkin.

Gwangju byrjaði tímabilið ágætlega en hefur tapað sex leikjum í röð og er á botninum með sex stig eftir tíu umferðir.

Hólmbert hefur komið að þremur mörkum í átta leikjum.
Slapp
banner
banner
banner