Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Fernandez er stríðsmaður"
Mynd: EPA
Chelsea er komið áfram í úrslit enska bikarsins eftir 1-0 sigur á Leeds í undanúrslitunum í dag. Enzo Fernandez skoraði markið.

Calum McFarlane stýrði Chelsea í fyrsta sinn í dag en hann er bráðabirgðastjóri liðsins eftir að Liam Rosenior var látinn taka pokann sinn á dögunum.

„Léttir er rétta orðið. Við vorum bjartsýnir fyrir leikinn. Við höfum átt góða þrjá daga en maður veit aldrei. Við vildum bæta gengið sem hefur verið alls ekki verið nógu gott,"<7i> sagði McFarlane.



McFarlane var mjög ánægður með frammistöðu Fernandez.

„Það magnaðasta við hann er að hann er stríðsmaður. Þú þarft ekki að vera með fullkomið leikskipulag í þessum augnablikum, hann mun hlaupa og berjast og það gerir oft gæfumuninn."
Slapp
banner
banner
banner