Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 10:00
Sverrir Örn Einarsson
Íslenskir stuðningsmenn Leeds í góðum gír í London
Mynd: Aðesend
Mynd: Aðesend
Leeds United leikur í undanúrslitum enska FA bikarsins nú í dag klukkan 14 á Wembley þar sem andstæðingurinn verður Chelsea. Ár og öld er síðan að Leeds fagnaði síðast sigri í keppninni og láta aðdáendur Leeds sig dreyma um sigur í dag og tækifæri á þeim stóra í maí gegn Manchester City. Fótbolti.net tók Árna Þór Birgisson stuðningsmann Leeds tali en hann er staddur í London og er á leið á leikinn.

„Stemmningin er alveg ljómandi góð. Ég er með góða tilfinningu fyrir leiknum. Við búnir að spila ljómandi vel síðustu vikur og Chelsea í algjöru brasi“

Sagði Árni um stemminguna meðal íslenskra stuðningsmanna. Hann bætti svo við bjartsýni innan hópsins væri töluverð.

„Chelsea er klárlega sigurstranglegra liðið enda með svaka mannskap og nýjan stjóra. Þeir hafa þó ekki verið að spila eins og lið síðustu vikur auk þess sm við höfum líka verið að ná góðum úrslitum gegn þeim síðustu ár. Og eins og fyrir alla stóra leiki dreymir mann um góð úrslit.“

Mikill rígur er á milli félagana og hefur andað köldu á milli í áratugi. Gerir það þessa viðureign kannski bara ennþá meira spennandi fyrir vikið?

„Já heldur betur. Aðdáendur þessara liða kunna ekkert sérlega vel hverjir við aðra og sá rígur hófst um miðjan sjöunda áratuginn og er ekkert á leiðinni að hætta.“

En hvernig sér Árni leikinn fyrir sér? Hvernig mun þetta allt saman þróast?

„Þetta verður slagur í fyrri hálfleik og lítið um færi. Leeds kemst yfir í byrjum seinni en eftir það leggjast Chelsea menn á okkur og jafna á 80 minútu.

Brenden Aaronson skorar svo eitthvað geggjað sigurmark í uppbótartima“


Sagði Árni fullur bjartsýni fyrir leik dagsins.

Slapp
banner
banner