Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kolbeinn frá næstu vikurnar
Mynd: Guðmundur Svansson
Kolbeinn Þórðarson er mikilvægur hlekkur í byrjunarliðinu hjá Gautaborg í sænska boltanum en hann verður frá næstu vikurnar vegna vöðvameiðsla.

Það eru mikil meiðslavandræði í herbúðum Göteborg þessa dagana en liðið er aðeins með tvö stig eftir fjórar fyrstu umferðirnar á nýju tímabili í Allsvenskan.

Kolbeinn er 26 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Göteborg frá félagaskiptum sínum sumarið 2023.

Liðsfélagar Kolbeins taka á móti GAIS í dag og þurfa á sigri að halda eftir slaka byrjun á tímabilinu.
Slapp
banner
banner
banner