Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 14:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Orri Steinn á skotskónum í grátlegu jafntefli
Mynd: EPA
Rayo Vallecano 3 - 3 Real Sociedad
0-1 Mikel Oyarzabal ('22 )
1-1 Sergio Camello ('30 )
1-2 Orri Oskarsson ('63 )
1-3 Mikel Oyarzabal ('76 , víti)
2-3 Florian Lejeune ('84 )
3-3 Alemao ('90 )

Orri Steinn Óskarsson var á skotskónum þegar Real Sociedad vann góðan sigur á Rayo Vallecano í spænsku deildinni í dag.

Mikel Oyarzabal kom Sociedad yfir en Sergio Camello jafnaði metin fyrir Vallecano áður en fyrri hálfleik lauk. Eftir rúmlega klukkutíma leik fékk Orri boltann inn á teignum og hann var yfirvegaður og skoraði og kom Sociedad aftur yfir.

Það var mikil dramatík stuttu síðar þegar Pedro Diaz virtist vera jafna metin fyrir Vallecano. VAR steig hins vegar af því að það var mögulegt brot í teig Vallecano í aðdragandanum. Eftir dágóðan tíma komst dómarinn að því að um vítaspyrnu var að ræða.

Markið var því tekið af og Oyarzabal skoraði úr vítinu og innsiglaði sigur Sociedad. Rayo Vallecano minnkaði muninn undir lok leiksins þegar Florian Lejeune skoraði eftir hornspyrnu. Það stefndi í sigur Sociedad en Alemao bjargaði stigi fyrir Vallecano með marki þegar átta mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Sociedad er í 8. sæti með 43 stig en Rayo Vallecano er í 11. sæti með 39 stig.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 33 28 1 4 87 30 +57 85
2 Real Madrid 33 23 5 5 68 31 +37 74
3 Villarreal 32 19 5 8 57 37 +20 62
4 Atletico Madrid 33 18 6 9 56 37 +19 60
5 Betis 33 12 14 7 49 41 +8 50
6 Celta 32 11 11 10 44 41 +3 44
7 Getafe 33 13 5 15 28 34 -6 44
8 Real Sociedad 33 11 10 12 52 52 0 43
9 Athletic 33 12 5 16 36 48 -12 41
10 Osasuna 32 10 9 13 37 39 -2 39
11 Vallecano 33 9 12 12 33 41 -8 39
12 Valencia 33 10 9 14 37 48 -11 39
13 Elche 33 9 11 13 44 49 -5 38
14 Espanyol 32 10 8 14 37 49 -12 38
15 Girona 33 9 11 13 36 50 -14 38
16 Alaves 33 9 9 15 38 49 -11 36
17 Mallorca 33 9 8 16 41 51 -10 35
18 Sevilla 32 9 7 16 39 53 -14 34
19 Levante 32 8 8 16 37 50 -13 32
20 Oviedo 33 6 10 17 25 51 -26 28
Slapp
banner
banner
banner