PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   sun 26. apríl 2026 09:00
Sverrir Örn Einarsson
Eddie Howe: Frammistaðan stefnir í rétta átt
Mynd: EPA
Eddie Howe horfði á eftir sínum mönnum tapa gegn Arsenal í leik þar sem langskot frá Eberechi Eze á níundu mínútu reyndist skilja á milli þegar upp var staðið.

„Okkur finnst þessi dagur vera stórt skref fram á við hvað varðar frammistöðu okkar. Þetta var miklu betri varnarleikur hjá okkur.“

„Það voru vonbrigði að tapa á þennan hátt. Við fengum nokkur færi og það var jákvætt. Við vorum miklu betri á boltanum og munum halda áfram að vera það með endurkomu Bruno (Guimaraes). Við erum svekktir yfir því að tapa leiknum og þessi slæma hrina heldur áfram, sem er eitthvað sem við viljum stöðva.“

Þetta var fjórða tap Newcastle í röð í úrvalsdeildinni, en vonir standa til að frammistaðan boði betri tíma í síðustu fjórum leikjunum.Howe trúir því að svo sé:

„Frammistaða gefur manni alltaf von ef hún stefnir í rétta átt. Sjálfstraust okkar og trú hefur vantað en ég held að í dag höfum við náð að snúa við blaðinu. Það er auðvelt að segja það, en nú þurfum við að sýna það í verki.“
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner