„Þetta var ágætt, ég hef komið hingað áður og æft, þetta er fínt. Þetta er það besta í stöðunni miðað við veðrið úti," sagði Eiður Smári Guðjohnsen við Fótbolta.net eftir að hafa spilað með Breiðabliki í markalausu jafntefli við Víking í Bose mótinu í dag.
Eiður Smári komst í fínt færi í leiknum og hefði getað skorað þar.
„Já ég átti að setja hann, en ég var meira að spá í að þetta átti að vera góð æfing. Svo er ég alltaf með bakvið eyrað að lenda ekki í samstuði og meiða sjálfan sig né annan. Þetta verða aldrei 100% leikir," sagði Eiður en hann Víkingar létu hann finna fyrir sér, þar á meðal Viktor Bjarki Arnarsson einu sinni.
„Ég er ekkert gerður úr postulíni og auðvitað má vera smá stuð í þessu. En þegar maður er alltaf með þetta í kollinum er maður ekki að taka neina áhættu. En þetta var gaman, það er alltaf gaman í fótbolta og þetta var fín æfing fyrir daginn í dag. Svo tekur næsta vika við," sagði Eiður en afhverju er hann hjá Breiðabliki?
„Það er engin ástæða fyrir því nema að ég þekki Arnar Grétars þjálfara vel og við áttum samtal fyrir stuttu um allt annað. Ég sagði honum að ég væri að koma til Íslands og hann bauð mig bara velkominn. Ég er ekki beint að leita að liði, ég er bara í fríi þar sem kínverska deildin er búin. Ég er samningsbundinn fram í janúar og þarf bara að halda mér við. Ég vil helst spila í Evrópu en er ekki farinn að tala við nein lið að viti. Ég er tiltölulega rólegur yfir því."
Eiður spilaði ungur að árum með Val og KR hér á landi en hefur verið í atvinnumennsku í fjölda ára. Kemur til greina að enda á Íslandi?
„Nei, ég sé það ekki gerast. Maður segir aldrei aldrei, en það er nánast öruggt að ég mun ekki enda í Pepsi-deildinni."





















