Bruno íhugar sína stöðu á Old Trafford - Kane ræðir við Bayern um framlengingu - Beto á blaði Juve
   þri 06. janúar 2026 13:00
Elvar Geir Magnússon
Ungstirni Úlfanna undir smásjá Newcastle
Mateus Mane.
Mateus Mane.
Mynd: EPA
Newcastle United er meðal félaga sem fylgjast grannt með Mateus Mane hjá Wolves. Þessi 18 ára leikmaður hefur vakið athygli á tímabilinu.

Hann varð yngsti markaskorari Úlfanna í sögu ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann skoraði í 3-0 sigrinum gegn West Ham um síðustu helgi.

Hann hefur spilað níu deildarleiki á tímabilinu.

Newcastle er að skoða möguleika fyrir sóknarlínu sína en Aston Villa vill fá William Osula frá norðanmönnum.
Athugasemdir
banner
banner