Adolf (hér til hægri) á æfingunni í dag. Með honum á myndinni er annar Stjörnumaður, Róbert Frosti Þorkelsson.
„Þetta var erfiður leikur og mjög krefjandi. Þetta er topplið og mjög erfitt að eiga við þá," sagði Adolf Daði Birgisson, leikmaður U19 landsliðsins, fyrir æfingu á Möltu í dag.
Hann var þar að ræða um síðasta leik liðsins gegn Spánverjum, sem var fyrsti leikur á Evrópumótinu.
Hann var þar að ræða um síðasta leik liðsins gegn Spánverjum, sem var fyrsti leikur á Evrópumótinu.
„Þetta var mikil þjáning, það má segja það," sagði Adolf Daði jafnframt en Spánverjar héldu mikið í boltann og Íslendingarnir voru lengst af að elta.
Hann segir að það hafi gengið vel að ná kröftum aftur eftir leikinn við Portúgal. „Við höfum verið duglegir að drekka og borða. Við erum í toppmálum."
Það koma flestir leikmenn liðsins úr Stjörnunni, fimm talsins. Adolf Bragi er einn af þeim.
„Það er alltaf geggjað að vera með þessum gæjum, ég er búinn að spila með þeim frá því ég var lítill. Að vera með þeim á þessu sviði er draumur. Þetta er ólýsanlegt, algjör heiður og sýnir hversu flott starfið er hjá Stjörnunni."
Á morgun spilar Ísland við Noregi í öðrum leik sínum á mótinu. Það er gríðarlega mikilvægur leikur. „Þetta er eiginlega algjör úrslitaleikur. Við erum vel stemmdir og getum ekki beðið," sagði þessi öflugi leikmaður að lokum.
Athugasemdir























