„Þetta var fínn leikur við góðar aðstæður og við mættum sterku Stjörnuliði, þetta er bara hluti af undirbúningnum fyrir efstu deild. Við fengum bara góðar mínútur á stærsta hlut leikmannahópsins í dag og að mörgu leyti jákvætt. Spiluðum mjög fínan fyrri hálfleik, sóknarleikurinn fínn, pressan fín og það voru fullt af jákvæðum punktum í þessu sem við tökum með okkur út úr þessu móti, bara jákvæður dagur að ansi mörgu leyti því að við erum á fullu að undirbúa okkur fyrir bestu deildina" sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH eftir úrslitaleik í Þungavigtarbikarinum gegn Stjörnunni á Samsungvellinum.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 0 FH
Hvernig hefur veturinn og undirbúningstímabilið verið?
„Það hefur gengið nokkuð vel, við erum að vinna allir sem einn í rétta átt bara líka að fókusa að koma okkur í gott stand. Það hafa verið aðeins meiðsli að hrjá okkur en við erum að koma flest öllum í hundrað prósent stand. Ég er ánægður með það að flestir okkar leikmenn eru heilir þessa stundina, það er bara jákvætt. við eigum núna þrjá leiki fram af fyrsta leik á móti ÍBV. Ég horfi bara mjög jákvæðum augum á þetta undirbúningstímabil hingað til. En auðvitað skiptir mest máli hvað við gerum í fyrsta leiknum sem er í raun og veru bikarleikur, svo fyrsta leik í deildinni, það er þegar það fer að telja."
Ætlar FH að styrkja sin einn meira og hvernig meturðu liðið?
„Við erum flottan hóp og fullt af ungum og efnilegum leikmönnum í hópnum hjá okkur og eru búnir að fá að spila mikið á þessu undirbúningstímabili. Við erum samt sem áður alveg að sjá hvort að það eru einhverjir leikmenn þarna sem geta styrkt okkur og passa inn í leikstílinn okkar og það sem við viljum gera. Við erum klárlega að skoða að einhverju leyti styrkingar fyrir átökin þegar deildin byrjar."
Hvernig finnst Jói Kalli hvernig nýju leikmennirnir hafa komið inn í liðið, t.d. Adolf Daði og Sverrir Páll?
„Þeir hafa komið mjög vel inn í þetta. Adolf er hörkuleikmaður og Sverrir sömuleiðis og fleiri leikmenn sem hafa komið inn til okkar, það er búið að ganga mjög vel. Hópurinn er þéttur og fínn og nokkur samreyndur hópur. Þó að það séu kannski nokkrir nýir leikmenn sem hafa komið inn í þetta en mér finnst samheldnin vera góð og vinnusemin vera algjörlega til fyrirmyndar. Það er eitthvað sem við ætlum okkur að byggja á."
Það hefur mikið verið talað um FH á þessu undirbúningstímabili. hvernig finnst þér umræðan búin að vera?
„Nei, að einhverju leyti er umræðan eins og hún er. Það er rosalega erfitt ætla að vera þjálfari hjá einhverju liði og reyna að hafa áhrif á umræðuna. Ég held að menn hafa alveg reynt að gera það í gegnum tíðina með misgóðum árangri. Ég er þjálfari liðsins og leikmannahópurinn, við erum að fókusa á það sem við getum haft áhrif á. Við getum ekki haft nein áhrif á umræðuna og hvernig hún er, við komum til að leggja okkur fram og leggja alveg fullt af vinnu í það sem fram undan er. Það er alveg á hreinu og við höfum alveg gæði í leikmannahópnum líka og við höfum trú á þessu sem við erum að gera. Það er það sem skiptir okkur lang mestu máli. Eins og ég kom svolítið inn á áðan að það skiptir máli þegar deildin byrjar, bikarinn byrjar, þegar þetta fer að telja. Þá ætlum við að okkur að vera klárir í slaginn og vera með breidd og þannig standi að við getum komið inn í mótið af fullum krafti."
Hvað gerðist í leiknum gegn Fylki þegar FH kom ekki út í seinni hálfleik?
„Ég mat bara aðstæður þannig að ég treysti því ekki að við gætum farið út í seinni hálfleikinn án þess að taka allt of mikla sjensa að það yrði mikið um meiðsli og jafnvel alvarleg meiðsli á leikmönnum. Það var bara mín skoðun á því mómenti að hafa gert það og auðvitað er hægt að gagnrýna það og allt það. Það var bara mín ákvörðun á þessum tímapunkti og við ákváðum að gera þetta svona. Rétt eða rangt eða hvað sem er, það er fyrir aftan okkur núna, við höldum áfram. Fyrst og fremst er þessi leikmannahópur FH er á minni ábyrgð og ég ætla að gera allt sem ég get til þess að sjá til þess að við séum klárir. Eins og ég sagði áðan við þurfum að vera klárir með hópinn þegar deildin byrjar og menn þurfa að vera í standi og ekki meiddir. Þetta skiptir nefnilega gríðarlegu máli hvernig við komum inn í mótið og það er minn helsti fókus.
Þannig að það er áfram gakk og til í næsta leik?
„Já já, algjörlega. Það eru æfingarleikir fram undan þannig að við höldum áfram ótrauðir og verðum klárir þegar þetta byrjar."
























