„Það er krafa frá mér að við tökum skref upp á við í einbeitingu og hvernig við dílum við mismunandi aðstæður.“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlalandsliðsins, valdi í hádeginu 23 manna hóp fyrir vináttuleikina gegn Kanada (28. mars) og Haítí (31. mars).
Arnar gerði nokkrar breytingar á hópnum sem valinn var fyrir leikina gegn Aserbaísjan og Úkraínu í nóvember. Sex leikmenn víkja úr hópnum og komu fimm inn í staðinn, þar ber helst að nefna Gylfa Þór Sigurðsson.
Landsliðsþjálfarinn sat fyrir svörum á blaðamannafundi fyrr í dag og ræddi Fótbolti.net við hann að fundinum loknum.
Arnar gerði nokkrar breytingar á hópnum sem valinn var fyrir leikina gegn Aserbaísjan og Úkraínu í nóvember. Sex leikmenn víkja úr hópnum og komu fimm inn í staðinn, þar ber helst að nefna Gylfa Þór Sigurðsson.
Landsliðsþjálfarinn sat fyrir svörum á blaðamannafundi fyrr í dag og ræddi Fótbolti.net við hann að fundinum loknum.
„Ég ætlast til að við höldum áfram því sem við gerðum vel í síðasta glugga. Ég ætlast til að við köstum í ruslið þeim mistökum sem við gerðum sem kostuðu okkur dýrt. Við erum alltaf úrslitamiðaðir en einbeitingin þetta árið fer í að skila (e. delivera). Nú er leikskólinn, grunnskólinn, menntaskólinn og háskólinn búinn núna við þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið.
Eitt ár með landsliði jafnast á við tvö, þrjú ár með félagsliði. Við höfum ekki efni á að bíða í þrjú, fjögur ár eftir því að liðið fari að mótast. Það er krafa frá mér að við tökum skref upp á við í einbeitingu og hvernig við dílum við mismunandi aðstæður.“
„Það verður blóð“
Eru þetta andstæðingar sem við getum unnið?
„Já, við höfum verið sterkir úti. Við höfum spilað marga útileiki undir minni stjórn. Við höfum spilað örugglega tíu og hálfa útileiki. Hálfi leikurinn var úti í Murcia gegn Kósovó, sælla minninga. Þetta eru erfiðir útileikir sem við höfum farið í. Mismunandi og krefjandi aðstæður sem kemur okkur til góðs.
Nú mætum við Kanada sem er á svipuðum slóðum og Úkraína á styrkleikalista FIFA. Síðan mætum við Japan í júní. Þetta eru hörku þjóðir. Ef ég væri að fara á HM núna í sumar þá myndi ég gefa allt í þá vináttuleiki sem væru framundan. Ég er að reyna ýja að því að þetta verði ekki beint vináttuleikir, það verður smá blóð.“
Nánar er rætt við Arnar í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir























