Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
banner
   sun 06. september 2015 21:41
Arnar Daði Arnarsson
Eiður Smári: Það er ástæða fyrir því að ég kom aftur
Icelandair
Eiður Smári var ánægður í leikslok.
Eiður Smári var ánægður í leikslok.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen er reyndasti leikmaður íslenska landsliðsins sem tryggði sér á EM í Frakklandi næsta sumar eftir 0-0 jafntefli gegn Kasakstan í kvöld.

Eiður Smári var ónotaður varamaður í kvöld en hann segir tilfinninguna að vera kominn á stórmót með íslenska landsiðinu vera ótrúlega.

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  0 Kasakstan

„Í dag var þetta formsatriði að klára þetta og auðvitað vissum við það að við þyrftum að vera einbeittir. Þessi leikur sem slíkur fer ekki í sögubækurnar fyrir annað en að hafa tryggt okkur sætið."

„Þessi keppni hefur verið ævintýri líkust. Ég held að það sé virðingarvert fyrir öllum sem hafa tekið þátt. Við munum horfa til baka einn daginn og hugsa; Þetta er ekki bara þeir sem eru inná eða þeir sem skora mörkin. Það er samstaðan í liðinu. Það er hugarfarið í mönnum sem er kannski utan liðið inn á milli og allt í kring."

„Knattspyrnusambandið á hrós skilið fyrir að hafa tekið stór skref og mikil framför. Þetta helst allt í hendur. Þegar úrslitin eru eins og þau eru þá fær það fólkið með okkur. Við erum ótrúlega þakklátir fyrir magnaðan stuðning."

„Það er sama í hvaða land þú ferð. Þetta er 300 þúsund manns. Það er yfirleitt smábær í þessum þjóðum. Og hugsa sér hvað við eigum marga góða knattspyrnumenn og mikið af mönnum með frábært hugarfar og risastórt hjarta. Þá er þetta magnað," sagði Eiður Smári sem segir að sigur með íslenska landsliðinu sé alltaf sætari en með félagsliðunum.

„Að hafa náð þessu markmiði er magnað og gefur manni mun meira en hver titilinn fyrir sig."

Þegar ljóst var að Ísland hafi ekki komist á HM í Brasilíu eftir umspils viðureign gegn Króatíu var tilfinningalegt viðtal við Eið eftir leikinn þar sem hann var nokkuð viss um að sá leikur hafi verið sinn síðasti í íslensku landsliðstreyjunni. Annað kom þó á daginn.

„Við getum orðað það þannig, að það er ástæða fyrir því að ég kom aftur og tók við símtalinu við Heimi á sínum tíma. Ég get ekki séð eftir þeirri ákvörðun, sagði einn besti knattspyrnumaður þjóðarinnar fyrr og síðar, að lokum í viðtali við Fótbolta.net.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner