Ungstirnið Viktor Bjarki Daðason var skilinn utan leikmannahóps FCK er liðið vann 2-1 sigur á Viborg í undanúrslitum danska bikarsins á síðastliðinn laugardag.
Youssoufa Moukoko, fyrrum leikmaður Dortmund, byrjaði fremstur og nýtti tækifærið vel þar sem hann skoraði bæði mörk FCK.
Jacob Neestrup, þjálfari FCK, segir við danska miðilinn Bold það hafa verið erfitt að skilja Viktor eftir utan hóps í viðtali eftir leik.

„Ákvörðunin um að skilja Viktor eftir utan hóps er kannski umdeild því hann hefur spilað mikið. Við ætlum að byrja með hraða í liðinu og horfum líka til þess hvaða leikmenn geta breytt leiknum okkur í hag.
En það var erfitt að tilkynna Viktori þetta, sérstaklega þar sem hann og liðið hafa átt erfitt uppdráttar undanfarið. Hann verður hins vegar klár í að leggja vinnu inn aftur á morgun og hann mun fá mikinn spiltíma á næstunni,“ sagði Neestrup að lokum.
Athugasemdir