Arne Slot, stjóri Liverpool á Englandi, var virkilega ánægður með liðið í 2-0 sigrinum á Fulham í dag.
Það hefur gengið illa hjá Slot og hans mönnum síðustu vikur og var því þessi sigur á Fulham lífsnauðsynlegur.
Sautján ára Englendingur að nafni Rio Ngumoha var alger leikbreytir fyrir Liverpool í leiknum en hann skoraði og átti þátt í markinu sem Mohamed Salah skoraði.
„Ég er klárlega ánægðari núna en eftir að hafa tapað 4-0 og 2-0. Frábær fyrri hálfleikur og við vorum nálægt því nokkrum sinnum en síðan átti Rio gott augnablik. Rétt áður fannst mér Fulham vera að koma inn í leikinn þannig þetta var mjög hjálplegt. Hann átti einn á einn augnablik og skoraði frábært mark.“
„Í kjölfarið átti Mo góða afgreiðslu sem kom okkur í þægilega stöðu inn í hálfleikinn.“
„Einn af styrkleikum Rio er að að vera með yfirráð í einn á einn stöðu. Við höfum séð það á þessu tímabili og hann er að fá fleiri mínútur með hverjum leiknum. Hann verðskuldar það líka því hann gerir svo vel þegar hann er á vellinum. Hann hefur áhrif, líkt og hann gerði í dag og gegn Wolves. Svo skoraði hann í dag sem er mjög mikilvægt í fótbolta því mörk hafa svo mikla þýðingu,“ sagði Slot.
Slot finnur alveg klárlega fyrir pressunni í stjórastól Liverpool en segir stöðuna aðeins betri og sérstaklega fyrir mikilvæga leiki gegn Paris Saint-Germain og Everton í næstu viku.
„Þetta er betri staður til að vera á en fyrir tveimur dögum síðan eða viku, en það er ekki eins og allt sé í mjög góðu þó við höfum unnið leik.“
„Við höfum spilað marga leiki eins og þessa á tímabilinu, en það hefur ekki alltaf skilað sigri. Við verðskulduðum sigurinn, ekki með miklum mun, en við áttum skilið að vinna.“
„Ég er ótrúlega ánægður með hreint lak. Þú þarft það nánast í hverjum einasta leik. Við þurfum það klárlega á þriðjudaginn, en þetta er stórt skref inn í vikuna, ekki bara fyrir leikinn gegn PSG, heldur líka gegn Everton í lok vikunnar. Þar á milli fáum við aðeins tvo hvíldardaga.“
„Stuðningsmennirnir standa með okkur og leikmennirnir munu gefa allt í þetta til þess að snúa þessu við. Við erum klárir í þetta og Anfield verður það sömuleiðis.“
Curtis Jones meiddist í leiknum gegn Fulham en Slot segir það afar ólíklegt að hann verði með á móti PSG.
„Hann fann aðeins til í náranum og kæmi það verulega á óvart ef að leikmaður fer af velli í dag og verður síðan klár á þriðjudag. Það koma alltaf meiðsli í kjölfar sigurs,“ sagði Slot í lokin.

