Enski vængmaðurinn Rio Ngumoha stal fyrirsögnunum eftir 2-0 sigur Liverpool á Fulham á Anfield í dag, en hann var maður leiksins að mati Sky Sports.
Ngumoha byrjaði á vængnum gegn Fulham og kom að báðum mörkum liðsins.
Hann skoraði fyrra markið með laglegu skoti úr teignum sem var hans fyrsta á Anfield og átti síðan stóran þátt í öðru markinu sem Mohamed Salah skoraði.
Sky Sports gefur Ngumoha 8 í einkunn og valdi hann mann leiksins. Salah og Jeremie Frimpong fengu einnig 8, en aðrir leikmenn Liverpool 7 í einkunn.
Liverpool: Mamardashvili (7), Frimpong (8), Robertson (7), Van Dijk (7), Konate (7), Szoboszlai (7), Jones (6), Ngumoha (8), Wirtz (7), Salah (8), Gakpo (7)
Varamenn: Gravenberch (7), Mac Allister (7), Gomez (7)
Fulham: Leno (6), Castagne (6), Andersen (6), Bassey (6), Robinson (6), Berge (6), Iwobi (7), Wilson (6), King (5), Bobb (5), Muniz (5)
Varamenn: Smith Rowe (6), Lukic (7), Jimenez (6), Chukwueze (6), Sessegnon (7).


