Ríkjandi Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru á góðri leið með að verja titilinn sinn eftir að hafa lagt FC Bayern München að velli í undanúrslitum í siðustu viku.
Luis Enrique, þjálfari PSG sem hefur fengið mikið lof fyrir sitt starf hjá risaveldinu, svaraði spurningum á fréttamannafundi fyrir leik PSG gegn Brest í frönsku deildinni um helgina og ræddi meðal annars um undanúrslitaleikinn.
Þar talaði hann sérstaklega um mikilvægi þess að kunna að tapa með sæmd og hrósaði franska varnarmanninum Dayot Upamecano fyrir hans viðbrögð eftir að Bayern var slegið úr leik á heimavelli.
„Eftir að við spiluðum gegn stórkostlegum andstæðingum í München sá ég gott myndband af Upamecano og Ousmane Dembélé í faðmlögum eftir lokaflautið. Það var afar mikilvæg stund sem sýnir að í fótbolta þá eru engir alvöru taparar," sagði Enrique.
„Að tapa er eðlilegur partur af lífinu og það er mikilvægt að kunna að tapa. Þú leggur þig 100% fram og svo verðuru að samþykkja niðurstöðuna eftirá sama hvernig fer.
„Ég vil óska Herra Upamecano til hamingju með hans viðbrögð, þetta er nákvæmlega það sem ég vil sjá þegar við töpum. Það er mikilvægt að sýna ungu fólki að það þarf að kunna að tapa. Það er mjög mikilvægt."
Upamecano og Dembélé eru mjög góðir vinir enda ólust þeir upp í sama bæ um 100km frá París og er aðeins eitt ár á milli þeirra í aldri.
11.05.2026 07:30
Kroos segir stjörnunum að taka Dembélé til fyrirmyndar




