Siebert gaf Willum Willumssyni rautt spjald í leik gegn Portúgal á Laugardalsvelli fyrir nokkrum árum.
Þjóðverjinn Daniel Siebert mun dæma úrslitaleik Arsenal og Paris St Germain í Meistaradeildinni þann 30. maí en UEFA opinberaði þetta í dag.
Siebert dæmdi 1-0 sigur Arsenal gegn Sporting Lissabon í 8-liða úrslitum og 1-0 sigurleik Arsenal gegn Atletico Madrid í undanúrslitum.
Siebert dæmdi 1-0 sigur Arsenal gegn Sporting Lissabon í 8-liða úrslitum og 1-0 sigurleik Arsenal gegn Atletico Madrid í undanúrslitum.
Frakkinn Francois Letexier mun dæma úrslitaleik Aston Villa og Freiburg í Evrópudeildinni sem fram fer 20. maí.
Ítalinn Maurizio Mariani dæmir úrslitaleik Sambandsdeildarinnar viku seinna en þar mætast Crystal Palace og Rayo Vallecano.
Hin sænska Tess Olofsson dæmir úrslitaleik Barcelona og Olympique Lyonnais í Meistaradeild kvenna þann 23. maí.



