Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 21:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta deildin: Markús Páll tók yfir en Fram gafst ekki upp
Viktor Jónsson skorar hér fyrir ÍA.
Viktor Jónsson skorar hér fyrir ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Markús Páll skoraði tvö mörk gegn uppeldisfélaginu.
Markús Páll skoraði tvö mörk gegn uppeldisfélaginu.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Fram 3 - 3 ÍA
1-0 Atli Þór Jónasson ('48 )
1-1 Viktor Jónsson ('52 )
1-2 Markús Páll Ellertsson ('54 )
1-3 Markús Páll Ellertsson ('61 )
2-3 Sigurjón Rúnarsson ('76 )
3-3 Kennie Knak Chopart ('91 )
Rautt spjald: Jakob Byström, Fram ('94) Lestu um leikinn

Það voru nú flestir spenntastir að sjá Gísla Eyjólfsson eða Guðmundur Þórarinsson eða jafnvel Böðvar Böðvarsson í liði ÍA í fyrsta leik þeirra í Bestu deildinni í kvöld. En það var Markús Páll Ellertsson sem stal sviðsljósinu. Jú, ásamt Kennie nokkrum Chopart.

Markús er sóknarmaður fæddur árið 2006 og er uppalinn hjá Fram. Hann er yngri bróðir landsliðsmannsins Mikaels Egils sem spilar með Genoa á Ítalíu. Hann kom á frjálsri sölu til Skagamanna frá Triestina á Ítalíu stuttu fyrir mót.

Markús reyndist uppeldisfélagi sínu afar erfiður í kvöld þegar Fram og ÍA mættust í síðasta leik fyrstu umferðar Bestu deildarinnar. Fyrri hálfleikurinn var afar bragðdaufur í Úlfarsárdalnum og fátt um marktækifæri.

Í seinni hálfleik mættu liðin út í öðrum gír. Atli Þór Jónasson, sem kom nýverið á láni til Fram frá Víkingum, kom heimamönnum yfir en svo hrundi leikur Fram um stund.

Viktor Jónsson jafnaði og Markús Páll tók svo yfir leikinn. Hann kom ÍA yfir á 54. mínútu og skoraði annað laglegt mark þegar rúmur klukkutími var búinn.

ÍA-menn þarna búnir að snúa leiknum við og í þægilegum málum. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var brúnaþungur á hliðarlínunni en hans gáfust ekki upp - svo sannarlega ekki.

Það voru varnarmennirnir hjá Fram sem björguðu þeim í þessum leik. Sigurjón Rúnarsson minnkaði muninn og reynsluboltinn Kennie Chopart jafnaði metin í uppbótartímanum eftir hornspyrnu.

Lokatölur 3-3, jafntefli niðurstaðan í miklum markaleik. Mikill karakter hjá Fram og Skagamenn eflaust svekktari aðilinn. Fyrstu umferð Bestu deildarinnar er þar með lokið og er ekki annað hægt að segja en að hún hafi verið mikil skemmtun.
Slapp
banner
banner