Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 15:14
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: Slæm mistök kostuðu ÍBV sigurinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 1 - 1 FH
1-0 Viggó Valgeirsson ('35)
1-0 Kjartan Kári Halldórsson ('73, misnotað víti)
1-1 Kári Kristjánsson ('80)

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  1 FH

ÍBV og FH áttust við í fyrsta leik dagsins í fyrstu umferð Bestu deildar karla og voru heimamenn sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.

Eyjamenn komust nálægt því að skora áður en Viggó Valgeirsson náði forystunni eftir góða sendingu frá Alex Frey Hilmarssyni, en FH-ingar vildu fá dæmda rangstöðu. Staðan var verðskuldað 1-0 eftir nokkuð bragðdaufan fyrri hálfleik.

Í síðari hálfleik var talsvert jafnara á vellinum og fengu gestirnir dæmda vítaspyrnu á 73. mínútu þegar Bjarki Björn Gunnarsson gerðist brotlegur innan vítateigs. Kjartan Kári Halldórsson steig á vítapunktinn en Marcel Zapytowski gerði vel að verja vítaspyrnuna.

Sjö mínútum síðar kom jöfnunarmark FH eftir vandræðagang í varnarleik ÍBV. Milan Jezdemirovic átti hörmulega sendingu til baka á markmann og endaði boltinn að lokum hjá Kára Kristjánssyni sem skoraði í autt markið.

Það var líf í leiknum á allra síðustu mínútum venjulegs leiktíma og í uppbótartímanum, en hvorugu liði tókst að gera sigurmark. Lokatölur 1-1.
Slapp
banner