Það var heldur betur líf og fjör í leikjunum þremur sem voru að klárast í Bestu deildinni. Það vantaði svo sannarlega ekki dramatíkina í lok þessara leikja.
Hinn 16 ára gamli Alexander Rafn Pálmason var hetja KR-inga sem unnu Keflavík í mögnuðum fótboltaleik.
Hinn 16 ára gamli Alexander Rafn Pálmason var hetja KR-inga sem unnu Keflavík í mögnuðum fótboltaleik.
KR tók forystuna þegar Arnór Ingvi Traustason skoraði eftir sex mínútna leik og var staðan 1-0 í hálfleik. Stefan Alexander Ljubicic, sóknarmaður Keflavíkur, mætti af krafti inn í seinni hálfleikinn og hann sneri leiknum við fyrir gestina. Þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma var staðan allt í einu orðin 1-2 fyrir Keflavík.
En KR-ingar gáfust ekki upp og þeir sneru leiknum við aftur. Stefán Árni Geirsson jafnaði og Alexander Rafn var hetjan. Báðir höfðu þeir komið inn af bekknum.
Keflavík fékk frábært færi til að jafna í lokin, Ásgeir Orri Magnússon markvörður liðsins átti skalla eftir horn en tókst ekki að skora. Lokatölur 3-2 í Vesturbænum og KR byrjar á sigri.
Nágrannar KR í Val byrja hins vegar ekki á sigri, þeir töpuðu gegn nýliðum Þórs á heimavelli. Valur spilaði lengst af mjög illa gegn KR í Mjólkurbikarnum á dögunum en þeir fóru vel af stað gegn Þór þar sem Dagur Orri Garðarsson skoraði um miðbik fyrri hálfleiks.
Forystan Valsmanna var ekki langlíf því Daninn Christian Jakobsen jafnaði metin tíu mínútum síðar. Bæði lið fengu færi í seinni hálfleik en heimamenn voru aðeins líklegri. Þá steig Ingimar Arnar Kristjánsson upp og skoraði sigurmark Þórsara með frábæru skoti.
Stuðningsmenn Þórs í stúkunni sungu allan leikinn og þeir voru greinilega himinlifandi eftir leik.
Stjörnusigur fyrir norðan
Á Akureyri voru það Stjörnumenn sem fóru heim með stigin þrjú. Stjarnan setti tóninn snemma og skoraði tvö mörk snemma, en Birgir Baldvinsson minnkaði svo muninn fyrir KA.
Heimamenn fundu kraft eftir markið og voru alveg líklegir til að jafna, en Emil Atlason reyndist þeim erfiður og hann skoraði þriðja mark Stjörnunnar snemma í seinni hálfleik.
Jakob Héðinn Róbertsson, sem spilaði með Völsungi í fyrra, minnkaði muninn aftur fyrir KA en þeir komust ekki lengra og sigur Stjörnunnar staðreynd.
Fyrsta umferðin klárast á eftir með leik Fram og ÍA.
Valur 1 - 2 Þór
1-0 Dagur Orri Garðarsson ('27 )
1-1 Christian Jakobsen ('37 )
1-2 Ingimar Arnar Kristjánsson ('89 )
Lestu um leikinn
KR 3 - 2 Keflavík
1-0 Arnór Ingvi Traustason ('6 )
1-1 Stefan Alexander Ljubicic ('55 )
1-2 Stefan Alexander Ljubicic ('79 )
2-2 Stefán Árni Geirsson ('86 )
3-2 Alexander Rafn Pálmason ('88 )
Lestu um leikinn
KA 2 - 3 Stjarnan
0-1 Emil Atlason ('4 )
0-2 Örvar Eggertsson ('13 )
1-2 Birgir Baldvinsson ('33 )
1-3 Emil Atlason ('57 )
2-3 Jakob Héðinn Róbertsson ('59 )
Lestu um leikinn



