Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 13. apríl 2026 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Mitt persónulega markmið er að fara upp í Bestu deildina"
Lengjudeildin
Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis.
Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis.
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Ægismenn unnu 2. deildina í fyrra.
Ægismenn unnu 2. deildina í fyrra.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Nenad á hliðarlínunni.
Nenad á hliðarlínunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jordan Adeyemo fagnar marki síðasta sumar. Hann var besti leikmaður 2. deildar.
Jordan Adeyemo fagnar marki síðasta sumar. Hann var besti leikmaður 2. deildar.
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Úr leik hjá Ægi síðasta sumar.
Úr leik hjá Ægi síðasta sumar.
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
„Spáin kemur mér ekki á óvart og ég tel að allir tuttugu og tveir þátttakendur hafi sett Ægi í 11. sæti, sem endurspeglar það sem við sýndum síðustu mánuði," segir Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis í Þorlákshöfn, um spá þjálfara og fyrirliða Lengjudeildarinnar fyrir komandi sumar.

Ægismönnum er spáð 11. og næst neðsta sæti Lengjudeildarinnar í þessari spá. „Ég myndi líklega sjálfur spá liðinu mínu 11. sæti miðað við frammistöðuna í vetur," bætir Nenad við.

„Eina liðið sem hefur átt erfiðari undirbúning en við er Völsungur."

Fór alls ekki eins og við höfðum ætlað
Ægir fór með sigur af hólmi í 2. deildinni síðasta sumar og spilar þess vegna í Lengjudeildinni í sumar. „Síðasta tímabil var það farsælasta í sögu félagsins. Við unnum deildina og komumst upp í Lengjudeildina í fyrsta sinn með eðlilegum hætti."

„Við spiluðum skemmtilegan og sókndjarfan fótbolta. En enginn les gamlar fréttir, það er liðið, og nýjar áskoranir framundan. Í íþróttum er sagt að þú sért ekki betri en síðasti leikur þinn."

Undirbúningstímabilið hefur hins vegar ekki farið eins og menn höfðu ætlað sér.

„Undirbúningstímabilið fór alls ekki eins og við höfðum ætlað. Planið var að móta lið, eða kjarna þess, fyrir 1. febrúar í síðasta lagi, með möguleika á að bæta við 1-3 leikmönnum í lykilstöður. Það reyndist ómögulegt með takmarkað fjármagn. Að auki glímdu lykilmenn við meiðsli og við náðum aldrei að spila einn leik með okkar sterkasta lið. Á meðan önnur lið eru að slípa leikstíl og form erum við enn að berjast við að setja saman samkeppnishæft lið," segir Nenad.

Stefnan er að styrkja leikmannahópinn frekar áður en glugginn lokar.

„Við höfum náð að halda flestum lykilmönnum og það er jákvætt, auk þess sem við höfum fengið til liðs við okkur unga og hungraða leikmenn sem vilja sanna sig. Við reynum að styrkja hópinn fyrir lok félagaskiptagluggans. Hugmyndin var alltaf að byggja á íslenskum leikmönnum, en það hefur reynst erfitt, annaðhvort vegna þess að við getum ekki boðið samkeppnishæf kjör eða vegna þess að við erum ekki taldir líklegir, eða einfaldlega vegna tímaskorts."

„Leikmenn sem hafa tekið þátt í öllu eða nær öllu undirbúningstímabilinu verða í mjög góðu standi þegar mótið hefst. Þeir sem hafa verið meiddir og nýir leikmenn þurfa hins vegar að ná sér á strik á ferðinni," segir Nenad.

Metnaðurinn er alltaf sá sami
Nú styttist heldur betur í tímabilið og býst Nenad við því að Lengjudeildin verði frekar óútreiknanleg í sumar.

„Deildin verður mjög spennandi og óútreiknanleg fram á síðasta dag, eins og áður. Ég tel að það verði óvænt úrslit bæði í baráttunni um sæti í Bestu deildinni og í fallbaráttunni niður í 2. deild. Fótbolti, og sérstaklega íslenskur fótbolti, er mjög ófyrirsjáanlegur," segir Nenad.

„Markmið okkar er að standa okkur vel í deildinni. Mitt persónulega markmið er að fara upp í Bestu deildina. Ég hef aldrei farið inn í mót sem þjálfari með annað markmið en að vinna deildina, sama hversu ólíklegt það kann að virðast. Stundum tekst það, stundum ekki en metnaðurinn er alltaf sá sami."

Mun ekki endurtaka þau mistök
Nú mæta Ægismenn í Lengjudeildina með reynslu eftir að hafa leikið í henni sumarið 2023.

„Ég vonaði innilega að þetta tímabil yrði öðruvísi en síðasta tímabil okkar í Lengjudeildinni 2023, þegar við komum seint inn og féllum niður með slæmum hætti sem neðsta lið deildarinnar. Því miður er staðan svipuð, ef ekki erfiðari. Ég vona þó að við höfum lært af því tímabili. Mistökin sem ég gerði þá, og ber mesta ábyrgð á, mun ég ekki endurtaka," segir Nenad.

„Ég hef mikla trú á leikmönnunum mínum og mínu starfi. Ég er sannfærður um að við getum náð langt ef hlutirnir falla með okkur. Það mun krefjast mikillar vinnu, þekkingar og ákveðins skammts af heppni. Kraftaverk gerast í fótbolta á hverjum degi, af hverju ekki að gera allt til að eiga okkar ævintýratímabil?" sagði þjálfari Ægismanna að lokum.
Slapp
banner