Atli Rafn Guðbjartsson er uppalinn Ægismaður sem lék einnig með Selfossi í yngri flokkum og síðar meir í meistaraflokki. Hans fyrstu meistaraflokksleikir komu 2015 með Ægi.
Hann sneri aftur í Þorlákshöfn fyrir tímabilið 2023 og hefur verið þar síðan. Hann lék 20 leiki í Lengjudeildinni 2023 og á síðasta tímabili skoraði miðjumaðurinn sjö mörk þegar Ægir vann 2. deild og tryggði sér aftur sætið í næstefstu deild. Í dag sýnir Atli á sér hina hliðina.
Hann sneri aftur í Þorlákshöfn fyrir tímabilið 2023 og hefur verið þar síðan. Hann lék 20 leiki í Lengjudeildinni 2023 og á síðasta tímabili skoraði miðjumaðurinn sjö mörk þegar Ægir vann 2. deild og tryggði sér aftur sætið í næstefstu deild. Í dag sýnir Atli á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Atli Rafn Guðbjartsson
Gælunafn: Rattlesnake eða snákurinn
Aldur: 27 ára
Hjúskaparstaða: Á föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það hefur verið sumarið 2015 með Ægi, kom inná á móti Huginn á Seyðisfirði og völlurinn var helvíti laus í sér, ég var eins og belja á svelli í þessum leik
Uppáhalds drykkur: Sykurlaust Appelsín var alltaf á toppnum en sykurlaust Mix er komið á toppinn þessa dagana
Uppáhalds matsölustaður: Hamborgarabúllan á Selfossi er drullugóð
Uppáhalds tölvuleikur: Call of Duty leikirnir eru oftast góðir, hef reyndar ekki prófað þennan nýjasta en leikurinn þar á undan var drullu góður
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Er eitthvað aðeins að fikta við rafmyntirnar
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: The Office er eitthvað sem maður getur alltaf sett í gang sama hversu oft maður hefur séð það
Uppáhalds tónlistarmaður: Birnir
Uppáhalds hlaðvarp: Dr.Football
Uppáhalds samfélagsmiðill: Er ennþá grjótharður Facebook maður
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Vísir eða fotbolti.net
Fyndnasti Íslendingurinn: Fór á uppistand með Pétri Jóhanni um daginn, hann er helvíti fyndinn
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: “Attu nokkuð one extra noccos?”
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Eigum við ekki bara segja Skallagrímur
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Hef mætt mörgum góðum en líklega stærsti ferillinn sem ég hef mætt er Danny Guthrie þegar hann spilaði með Fram
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Lárus Arnar þjálfaði okkur í gullaldarliði 4. flokk Ægis, alvöru kóngur
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Arnar Logi, gott að spila með honum en á það til að negla mann þegar maður er á móti honum
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Var mjög mikill Ronaldinho maður
Sætasti sigurinn: Það er lokaleikurinn í fyrra þegar við unnum Víði á 90. mín og tryggðum okkur 1. sætið í 2. deild
Mestu vonbrigðin: Setjum bara öll 3 krossbandsslitin saman í þetta
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ég tæki Þorkel Þráinsson aftur heim frá Árborg, þann yndislega dreng
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Einar Breki er efnilegur þótt hann gleymi stundum að mæta með hátalarann í klefa fyrir leiki
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Alfredo Ivan er huggulegur
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Hún er reyndar hætt í fótbolta núna en það væri Aníka Eiðs
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Ég er alveg tómur þarna
Uppáhalds staður á Íslandi: Ak city á sumrin er veisla
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Fyrsta sem kemur í hug er sumarið 2015 þegar Kiddi Vill miðvörður skoraði frá miðju og Raggi Olsen markmaður skoraði yfir völlinn frá okkar markteig á móti Njarðvík í brjáluðu roki í Þorlákshöfn, síðasti leikur tímabilsins og héldum okkur í deildinni með þessum sigri
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Þær hafa verið að koma og fara í gegnum tíðina en held ég sé ekki með neitt þessa dagana
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já ég fylgist mikið með íslenskum körfubolta
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Tiempo
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Danskan var soldið að þvælast fyrir mér
Vandræðalegasta augnablik: Ég reyndi einhverntímann að taka horn með að snerta boltann lúmskt og þykjast að einhver annar væri fara taka hornið, það var alls ekki lúmskt og þeir fóru bara tóku boltann og fóru í sókn
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Nikola Kristinn, Sigurpáll Sören og Benedikt Darra, ég elda matinn, Nikola kæmi með rauðvínið, Spalli kæmi með bjórinn og Benni með jagerinn
Bestur/best í klefanum og af hverju: Minn maður Bjarki Rúnar, alvöru stemningsmaður
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Myndi setja Anton Breka í Survivor, hann er týpan í það og myndi líklegast vinna það
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég er ágætur að shuffle-a á dansgólfinu
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Kristinn Ásgeir the kid, ekkert eðlilega steiktur
Hverju laugstu síðast: Að ég væri á leiðinni heim
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Setjum varnarfærslur í þetta
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Neil Armstrong hvernig var að lenda á tunglinu
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Mæta á völlinn, við erum mættir í Lengjuna!


