Kristján Ómar Björnsson, spilandi þjálfari hjá Álftanesi, var skiljanlega mjög svekktur eftir 3-0 tap gegn Augnabliki í kvöld.
Álftanes missti af sæti í 3. deild með tapinu.
Álftanes missti af sæti í 3. deild með tapinu.
„Þetta er einstaklega grátlegt, við vorum bara sigraðir í dag," sagði Kristján Ómar að leik loknum.
„Við náðum ekki að hrista úr okkur einhvern ótta sem ég hélt að væri ekki til staðar en reyndist síðan vera til staðar. Við náðum ekki að hrista hann úr okkur og menn voru stressaðir og staðir. Við spiluðum slakan leik, það verður bara að segja eins og er."
Það var mikið undir í þessum leik.
„Ég treysti mér alveg til að vera með þetta Álftanes-lið í góðri baráttu í 3. deild. Þetta er "brútal" keppni. Maður hefur ekki verið svona spenntur fyrir leik í meira en áratug."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir