Everton vill fá Grealish á lægra verði - Man Utd á eftir Wharton - West Ham hafnaði tilboði Chelsea
   lau 13. september 2025 17:13
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Ægir og Grótta upp í Lengjudeildina - Víðir er fallinn
Grótta er komin upp í Lengjuna á ný!
Grótta er komin upp í Lengjuna á ný!
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Ægir varð meistari eftir mikla dramatík
Ægir varð meistari eftir mikla dramatík
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Þróttur Vogum tapaði fyrir Gróttu og verður því áfram í 2. deild
Þróttur Vogum tapaði fyrir Gróttu og verður því áfram í 2. deild
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Ægir og Grótta eru komin upp í Lengjudeild karla eftir rafmagnaða lokaumferð í 2. deildinni í dag.

Grótta 2 - 0 Þróttur V.
1-0 Andri Freyr Jónasson ('41 )
2-0 Kristófer Dan Þórðarson ('44 )
Rautt spjald: Eyþór Orri Ómarsson , Þróttur V. ('82)

Grótta og Þróttur V. mættust í hreinum úrslitaleik um sæti í Lengjudeildina.

Vogamenn voru á toppnum með 42 stig fyrir lokaumferðina, en mættu Gróttu sem voru í baráttu um að komast upp. Vogamönnum hefði dugað jafntefli til að komast upp en leikmenn Gróttu voru með aðrar hugmyndir.

Seltirningar náðu að skora tvö mörk með stuttu millibili undir lok fyrri hálfleiks. Andri Freyr Jónasson gerði fyrra markið á 41. mínútu og bætti Kristófer Dan Þórðarson við öðru þremur mínútum síðar.

Eyþór Orri Ómarsson, leikmaður Þróttar, sá rauða spjaldið átta mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma og gerði það Vogamönnum enn erfiðara fyrir að komast inn í leikinn.

Mörkin urðu ekki fleiri á Nesinu og hafnar því Grótta í öðru sæti deildarinnar með 44 stig en Vogamenn í 3. sæti með 42 stig, og missa því af sæti í Lengjudeildina.

Grótta Alexander Arnarsson (m), Grímur Ingi Jakobsson, Dagur Bjarkason, Patrik Orri Pétursson, Caden Robert McLagan, Björgvin Brimi Andrésson (82'), Axel Sigurðarson (78'), Einar Tómas Sveinbjarnarson, Halldór Hilmir Thorsteinson (70'), Kristófer Dan Þórðarson, Andri Freyr Jónasson (70')
Varamenn Marvin Darri Steinarsson, Daníel Agnar Ásgeirsson (70'), Valdimar Daði Sævarsson (78'), Björgvin Stefánsson, Kristófer Melsted (82'), Hrannar Ingi Magnússon, Pétur Theódór Árnason (70')

Þróttur V. Jökull Blængsson (m), Guðni Sigþórsson (57'), Auðun Gauti Auðunsson, Hreinn Ingi Örnólfsson (57'), Anton Breki Óskarsson, Jón Veigar Kristjánsson, Sigurður Agnar Br. Arnþórsson (68'), Jón Jökull Hjaltason, Almar Máni Þórisson, Ásgeir Marteinsson (57'), Rúnar Ingi Eysteinsson
Varamenn Anton Freyr Hauks Guðlaugsson, Ólafur Örn Eyjólfsson, Rökkvi Rafn Agnesarson, Jóhannes Karl Bárðarson (57), Eyþór Orri Ómarsson (57), Franz Bergmann Heimisson (68), Birgir Halldórsson (57)

Víðir 2 - 3 Ægir
1-0 Markús Máni Jónsson ('39 )
1-1 Bjarki Rúnar Jónínuson ('51 )
2-1 David Toro Jimenez ('55 )
2-2 Jordan Adeyemo ('59 )
2-3 Daníel Karl Þrastarson ('91 )

Ægir vann deildina á eins dramatískan hátt og þeir gerast, en það hafði betur gegn Víði, 3-2, með sigurmarki í uppbótartíma.

Markús Máni Jónsson kom Víði í forystu á 39. mínútu og sá til þess að liðið færi með hana inn í hálfleikinn, en í upphafi síðari hálfleiks jafnaði Bjarki Rúnar Jónínuson metin.

David Toro Jimenez kom Víði aftur yfir á 55. mínútu en Ægismenn létu það ekki á sig fá.

Þeir spiluðu eins og sannir meistarar. Jordan Adeyemo, markahæsti maður deildarinnar, jafnaði á 59. mínútu og þá skoraði Daníel Karl Þrastarson dramatískt sigurmark í uppbótartíma.

Þetta mark tryggði Ægi deildarmeistaratitilinn og sæti í Lengjudeildina að ári. Magnað ár hjá Ægi og hjá Adeyemo sem skoraði 19 mörk og varð markakóngur á sínu fyrsta tímabili.

Víðir er á meðan fallinn niður í 3. deildina með 20 stig í næst neðsta sæti.

Víðir Joaquin Ketlun Sinigaglia, Alexis Alexandrenne, Markús Máni Jónsson, David Toro Jimenez, Cristovao A. F. Da S. Martins (90'), Valur Þór Hákonarson (66'), Haraldur Smári Ingason (90'), Erlendur Guðnason (80'), Dominic Lee Briggs, Pablo Castiello Montes, Róbert William G. Bagguley
Varamenn Dusan Lukic (90'), Ottó Helgason, Uros Jemovic (66'), Jón Garðar Arnarsson, Tómas Freyr Jónsson, Aron Örn Hákonarson (90'), Kristófer Snær Jóhannsson (80')

Ægir Andri Þór Grétarsson (m), Stefan Dabetic, Anton Breki Viktorsson, Atli Rafn Guðbjartsson, Jordan Adeyemo, Sigurður Óli Guðjónsson, Bilal Kamal, Aron Daníel Arnalds (55'), Einar Breki Sverrisson, Daníel Karl Þrastarson, Bjarki Rúnar Jónínuson
Varamenn Aron Fannar Hreinsson (55), Jón Jökull Þráinsson, Elvar Orri Sigurbjörnsson, Guðmundur Stefánsson, Aron Óskar Þorleifsson (m)

KFG 2 - 2 KFA
1-0 Djordje Biberdzic ('53 )
2-0 Bóas Heimisson ('60 )
2-1 Heiðar Snær Ragnarsson ('70 )
2-2 Unnar Ari Hansson ('90 )

KFG og KFA gerðu 2-2 jafntefli í Garðabæ. Djordje Biberdzic og Bóas Heimisson komu heimamönnum í tveggja marka forystu, en gestirnir náðu að jafna á síðustu tutttugu mínútunum.

Heiðar Snær Ragnarsson minnkaði muninn á 70. mínútu og gerði Unnar Ari Hansson síðan jöfnunarmarkið undir lok leiks.

KFG bjargaði sér frá falli en liðið hafnaði í 10. sæti með 23 stig, þremur stigum frá fallsæti. KFA hafnaði á meðan í 6. sæti með 32 stig.

KFG Guðmundur Rafn Ingason (m), Helgi Snær Agnarsson, Benedikt Pálmason, Magnús Andri Ólafsson (46'), Arnar Ingi Valgeirsson, Kári Vilberg Atlason, Elvar Máni Guðmundsson, Gísli Snær Weywadt Gíslason, Djordje Biberdzic, Jökull Sveinsson, Henrik Máni B. Hilmarsson (46')
Varamenn Tómas Orri Almarsson, Atli Freyr Þorleifsson, Kristján Ólafsson, Bóas Heimisson (46'), Arnar Darri Þorleifsson (46'), Franz Sigurjónsson, Eyþór Örn Eyþórsson

KFA Danny El-Hage (m), Unnar Ari Hansson, Geir Sigurbjörn Ómarsson, Arkadiusz Jan Grzelak, Marteinn Már Sverrisson, Ólafur Bernharð Hallgrímsson (66'), Arnór Berg Grétarsson (66'), Heiðar Snær Ragnarsson, Patrekur Aron Grétarsson, Hrafn Guðmundsson, Nenni Þór Guðmundsson (66')
Varamenn Eggert Gunnþór Jónsson, Birkir Ingi Óskarsson (66), Imanol Vergara Gonzalez (66), Nói Egilsson, Örn Óskarsson, Jawed Abd El Resak Boumeddane (66), Daníel Þór Cekic (m)

Dalvík/Reynir 3 - 1 Víkingur Ó.
1-0 Borja Lopez Laguna ('43 )
1-1 Miguel Joao De Freitas Goncalves ('56 , Sjálfsmark)
2-1 Tómas Þórðarson ('61 )
3-1 Þröstur Mikael Jónasson ('70 )

Dalvík/Reynir vann Víking Ólafsvík, 3-1, á Dalvíkurvelli.

Borja Lopez skoraði á 43. mínútu en gestirnir jöfnuðu þökk sé sjálfsmarki Miguel Goncalves á 56. mínútu.

Dalvíkingar sýndu samt mikla elju og náðu að ganga frá leiknum á síðasta hálftímanum með mörkum frá Tómasi Þórðarsyni og Þrseti Mikael Jónassyni.

Ágætis tímabil hjá Dalvík/Reyni sem hafnaði í 5. sæti með 34 stig en Víkingur Ó í 8. sæti með 28 stig.

Dalvík/Reynir Auðunn Ingi Valtýsson (73') (m), Þröstur Mikael Jónasson, Miguel Joao De Freitas Goncalves, Borja Lopez Laguna (85'), Nikola Kristinn Stojanovic (67'), Alex Máni Gærdbo Garðarsson (46'), Tómas Þórðarson, Gunnlaugur Rafn Ingvarsson, Rúnar Helgi Björnsson, Áki Sölvason, Sævar Þór Fylkisson (73')
Varamenn Hákon Atli Aðalsteinsson (67'), Viktor Daði Sævaldsson (85'), Aron Máni Sverrisson (46'), Þorri Jón Níelsson (73'), Ísak Andri Maronsson Olsen (73') (m)

Víkingur Ó. Jón Kristinn Elíasson (89') (m), Ingvar Freyr Þorsteinsson, Gabriel Þór Þórðarson (79'), Ingólfur Sigurðsson, Kristófer Áki Hlinason (89'), Hektor Bergmann Garðarsson (89'), Björn Darri Ásmundsson (79'), Luis Alberto Diez Ocerin, Björn Henry Kristjánsson, Asmer Begic, Kwame Quee
Varamenn Brynjar Óttar Jóhannsson (79), Bjarki Freyr Örvarsson (89), Haukur Smári Ragnarsson (79), Leó Örn Þrastarson (89), Kristall Blær Barkarson (89) (m)

Kári 2 - 1 Haukar
0-1 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('27 )
1-1 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('67 )
2-1 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('71 )

Kári var í fallbaráttu fyrir lokaumferðina en náðu að klára sitt með því að vinna 2-1 endurkomusigur á Haukum.

Sigurður Hrannar Þorsteinsson skoraði laglegt mark með skalla á 27. mínútu fyrir Hauka og fór aðeins um Káramenn, sem svöruðu í þeim síðari með tveimur mörkum.

Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson skoraði tvö mörk á fjórum mínútum og gulltryggði áframhaldandi veru Kára í 2. deild.

Kári hafnaði í 9. sæti með 24 stig en Haukar í 7. sæti með 31 stig.

Kári Kristján Hjörvar Sigurkarlsson (m), Sigurjón Logi Bergþórsson (88'), Benjamín Mehic (88'), Tómas Týr Tómasson, Gísli Fannar Ottesen, Marinó Hilmar Ásgeirsson, Marteinn Theodórsson, Oskar Wasilewski, Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson, Matthías Daði Gunnarsson (62'), Börkur Bernharð Sigmundsson (62')
Varamenn Mikael Hrafn Helgason, Axel Freyr Ívarsson, Jón Þór Finnbogason, Benedikt Ísar Björgvinsson, Birkir Hrafn Samúelsson, Kristian Mar Marenarson (88'), Þór Llorens Þórðarson (30')

Haukar Sveinn Óli Guðnason (m), Fannar Óli Friðleifsson, Haukur Darri Pálsson, Sigurður Hrannar Þorsteinsson, Daði Snær Ingason, Andri Steinn Ingvarsson, Tómas Atli Björgvinsson, Óliver Steinar Guðmundsson, Daníel Smári Sigurðsson, Hallur Húni Þorsteinsson, Óliver Þorkelsson
Varamenn Ævar Daði Segatta, Ísak Jónsson, Guðjón Pétur Lýðsson, Alexander Árni Alves Danielsson, Baltasar Trausti Ingvarsson, Arnar Bjarki Björgvinsson, Ísak Freyr Jóhannsson (m)

Höttur/Huginn 2 - 4 Kormákur/Hvöt
0-1 Kristinn Bjarni Andrason
0-2 Kristinn Bjarni Andrason
1-2 Markaskorara vantar
2-2 Markaskorara vantar
2-3 Kristinn Bjarni Andrason
2-4 Moussa Sidibe

Kormákur/Hvöt vann 4-2 sigur á botnliði Hattar/Hugins í lokaleik umferðarinnar.

Kristinn Bjarni Andrason gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu, þar á meðal eitt úr aukaspyrnu. Frábær endir á mótinu hjá Blönduósingum.

Sigurinn kemur Kormáki/Hvöt í 4. sæti með 35 stig en Höttur/Huginn hafnaði í neðsta sæti með 17 stig.

Höttur/Huginn Gerard Tomas Iborra (m), André Musa Solórzano Abed, Sæbjörn Guðlaugsson, Valdimar Brimir Hilmarsson, Þórhallur Ási Aðalsteinsson, Árni Veigar Árnason, Ívar Logi Jóhannsson, Eyþór Magnússon, Kristófer Bjarki Hafþórsson, Heiðar Logi Jónsson, Kristófer Máni Sigurðsson
Varamenn Kristófer Einarsson, Genis Arrastraria Caballe, Bjarki Fannar Helgason, Marti Prera Escobedo, Stefán Ómar Magnússon, Brynjar Smári Ísleifsson (m)

Kormákur/Hvöt Simon Zupancic (m), Sigurður Pétur Stefánsson, Juan Carlos Dominguez Requena, Bocar Djumo, Kristinn Bjarni Andrason, Matheus Bettio Gotler, Moussa Ismael Sidibe Brou, Helistano Ciro Manga, Indriði Ketilsson, Abdelhadi Khalok El Bouzarrari, Papa Diounkou Tecagne
Varamenn Dominic Louis Furness, Sigurður Bjarni Aadnegard, Hlib Horan, Haukur Ingi Ólafsson, Stefán Freyr Jónsson
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Ægir 22 14 2 6 60 - 35 +25 44
2.    Grótta 22 13 5 4 47 - 25 +22 44
3.    Þróttur V. 22 13 3 6 32 - 24 +8 42
4.    Kormákur/Hvöt 22 11 2 9 35 - 37 -2 35
5.    Dalvík/Reynir 22 10 4 8 38 - 26 +12 34
6.    KFA 22 9 5 8 53 - 45 +8 32
7.    Haukar 22 9 4 9 36 - 40 -4 31
8.    Víkingur Ó. 22 8 4 10 42 - 40 +2 28
9.    Kári 22 8 0 14 32 - 55 -23 24
10.    KFG 22 6 5 11 38 - 52 -14 23
11.    Víðir 22 5 5 12 33 - 41 -8 20
12.    Höttur/Huginn 22 4 5 13 27 - 53 -26 17
Athugasemdir