Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
banner
   lau 14. júní 2025 12:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
14 ára spilaði sinn fyrsta deildarleik með Grindavík - Áhugi erlendis frá
Lengjudeildin
Í baráttunni í gær.
Í baráttunni í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mikael Máni Þorfinsson lék sínar fyrstu mínútur í Lengjudeildinni í gærkvöldi þegar hann kom inn á sem varamaður í liði Grindavikur gegn Fylki.

Mikael Máni er fjórtán ára miðjumaður, uppalinn Grindvíkingur, sem þykir mikið efni. Hann kom við sögu í sigri gegn Reyni Sandgerði í bikarnum í vor og lék í fjórum Lengjubikarsleikjum í vetur.

Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  1 Grindavík

Mikael Máni er unglingalandsliðsmaður, hefur þegar spilað þrjá leiki fyrir U15 og þrjá fyrir U16. Fótbolti.net fjallaði um það í vetur að njósnarar hjá erlendum félögum væru að fylgjast með framþróun hans.

Hann kom inn á sem varamður á 79. mínútu í gær. Leikur Fylkis og Grindavíkur endaði með 1-1 jafntefli. Mikael Máni skrifaði undir þriggja ára samning við Grindavík í vetur. Hann verður 15 ára í næsta mánuði.
Athugasemdir
banner
banner