Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 11:45
Elvar Geir Magnússon
Carragher var steinhissa á ákvörðun Slot
Alexander Isak reynir að koma boltanum framhjá Matvei Safonov.
Alexander Isak reynir að koma boltanum framhjá Matvei Safonov.
Mynd: EPA
Jamie Carragher.
Jamie Carragher.
Mynd: EPA
Jamie Carragher, sparkspekingur og fyrrum leikmaður Liverpool, var steinhissa á þeirri ákvörðun Arne Slot, stjóra Liverpool, að vera með Alexander Isak í byrjunarliðinu í gær og Mohamed Salah á bekknum.

Isak hafði ekki byrjað leik síðan í desember og var tekinn af velli í hálfleik í leiknum á Anfield í gær.

Liverpool hafði tapað 2-0 í fyrri leiknum gegn Paris Saint-Germain og tapaði svo aftur með sömu markatölu í seinni leiknum.

„Ég trúi því ekki að Salah sé ekki að spila. Ég get ekki skilið ástæðuna," sagði Carragher í útsendingu CBS Sports fyrir leik í gær.

„Stjórinn hlýtur að hafa sínar ástæður en Isak er alls ekki í nægilega góðri leikæfingu. Mo Salah spilaði ekki í fyrri leiknum svo það er ekki eins og álagið sé of mikið. Hann lék í úrvalsdeildinni og skoraði, hann þekkir kerfið en Isak hefur ekki spilað með Ekitike áður."
Slapp
banner