Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 22:19
Brynjar Ingi Erluson
Sá besti valinn maður leiksins á Anfield - Ferran og Yamal fá 8
Dembele var bestur á Anfield
Dembele var bestur á Anfield
Mynd: EPA
Lamine Yamal var góður hjá Barcelona
Lamine Yamal var góður hjá Barcelona
Mynd: EPA
Ballon d'Or-sigurvegarinn Ousmane Dembele var maður leiksins er Evrópumeistarar Paris Saint-Germain komust áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar í kvöld.

Dembele skoraði bæði mörkin er PSG vann Liverpool 2-0 á Anfield, en samanlagt vann PSG einvígið sannfærandi, 4-0.

Hann fær 8 í einkunn frá Sky Sports. Alexander Isak var slakastur með 5, en hann var að byrja sinn fyrsta leik síðan í desember.

Liverpool: Mamardashvili (6), Frimpong (6), Konate (7), Van Dijk (6), Kerkez (6), Gravenberch (7), Mac Allister (6), Szoboszlai (7), Wirtz (6), Ekitike (6), Isak (5).
Varamenn: Salah (6), Gakpo (7), Gomez (6), Ngumoha (7), Jones (6).

Paris Saint-Germain: Safonov (7), Hakimi (7), Marquinhos (7), Pacho (6), Mendes (6), Joao Neves (6), Vitinha (7), Zaire-Emery (6), Doue (6), Dembele (8), Kvaratskhelia (6).
Varamenn: Hernandes (6), Barcola (7).

Lamine Yamal og Ferran Torres voru frábærir hjá Barcelona, en það dugði ekki til að koma liðinu áfram. Þeir skoruðu mörk liðsins í 2-1 sigri á Atlético.

Goal heldur utan um einkunnagjöf Barcelona á meðan Into The Calderon sér um einkunnir Atlético. Þeir völdu Nahuel Molina, Matteo Ruggeri, Koke, Marcos Llorente og Antoine Griezmann besta með 8.

Atlético: Musso (7), Molina (8), Le Normand (7), Lenglet (4), Ruggeri (8), Simeone (6), Koke (8), Llorente (8), Lookman (7), Griezmann (8), Alvarez (6).
Varamenn: Gonzalez (6), Baena (6), Sorloth (6).

Barcelona: Garcia (6), Kounde (6), Garcia (5), Martin (7), Cancelo (5), Gavi (7), Pedri (6), Olmo (7), Yamal (8), Ferran (8), Fermin (6).
Varamenn: Rashford (5), Lewandowski (5), De Jong (6).
Slapp
banner
banner