Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 16:30
Elvar Geir Magnússon
Shelvey hættur að spila og farinn í þjálfun
Jonjo Shelvey á Laugardalsvelli.
Jonjo Shelvey á Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jonjo Shelvey hefur lagt skóna á hilluna en hann hefur síðan í september verið leikmaður Arabian Falcons í C-deildinni í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Shelvey er 34 ára og tekur nú við sem aðalþjálfari liðsins. Félagið var stofnað 2023 en meðal leikmanna þess er Ravel Morrison, fyrrum leikmaður Manchester United.

Það eru fimm umferðir eftir af tímabilinu og Shelvey og félagar í baráttu um að komast upp.

„Markmið mitt er að fara alla leið á toppinn í þjálfun og þetta er fullkomið verkefni til að sýna hvað ég get," segir Shelvey.

Shelvey hóf sinn feril með Charlton Athletic og spilaði meðal annars með Liverpool, Swansea, Newcastle og Nottingham Forest.

Hann var miðjumaður sem lék sex landsleiki fyrir England, alla undir stjórn Roy Hodgson.
Slapp
banner