Ísland mætir Slóvakíu í gríðarlega mikilvægum leik í undankeppni EM annað kvöld klukkan 18:45 á Laugardalsvelli. Bæði lið setja stefnuna á að komast á EM í Þýskalandi á næsta ári.
Ísland er með þrjú stig eftir tvo leiki í riðlinum en Slóvakía er með fjögur stig eftir markalaust jafntefli við Lúxemborg og tveggja marka sigur á Bosníu-Hersegóvínu.
Íslenska liðið tapaði fyrsta leik sínum í mótinu, gegn Bosníumönnum, en vann síðan stærsta sigur A landsliðs karla í mótsleik frá upphafi þegar sjö marka sigur vannst á Liechtenstein.
Leikmannahópur Íslands hefur verið við æfingar á Laugardalsvelli síðustu tvær vikur undir stjórn nýs þjálfara, Norðmannsins Age Hareide. Eftir leikinn gegn Slóvakíu tekur við leikur gegn Portúgal á þriðjudaginn.
Enn eru til miðar á leikinn við Slóvakíu og er miðasala opin á tix.is. Uppselt er á leikinn gegn Portúgal.
Fyrir þau sem ekki komast á leikina má benda á að þeir verða í beinni sjónvarpsútsendingu á Viaplay og sýndir í opinni dagskrá.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |

