Everton vill fá Grealish á lægra verði - Man Utd á eftir Wharton - West Ham hafnaði tilboði Chelsea
Jón Daði: Þarf að komast í burtu frá fótbolta og hreinsa hugan
Bjarni Jó: Það kannski einkennir lið sem er að falla
Ingimar Arnar skoraði sigurmarkið: Ég man ekki einu sinni eftir þessu
Jóhann Birnir: Svekkelsi
Sigfús Fannar: Þetta mark var fyrir hana
Siggi Höskulds: Fannst við eiga skilið að vinna þessa deild
Addi Grétars: Ekki mikil fótboltaleg gæði
Aron Ingi: Það var bara eitt markmið og það var að fara beint upp
Gústi Gylfa: Úr því sem komið var var markmiðið að halda sér uppi
Aron Birkir: Ég veit ég gat ekkert í fyrra
Alli Jói: Ekki bara leikjahæsti heldur besti leikmaður í sögu Völsungs
Gunnar Már: Við förum beint upp
HK náði markmiðinu - „Voru ótrúlega sterkir í hausnum"
Hafa áhuga á að halda áfram með Grindavík - „Spennandi hópur og við Marko vinnum vel saman"
Gunnar Heiðar: Lengri leið og hún verður bara skemmtilegri fyrir vikið
Bjarki stoltur eftir síðasta leikinn sinn - „Liðið hefur aldrei verið á betri stað"
Fannar Daði: Það var ekkert planið að spila á þessu tímabili
Jóhannes Karl: Aldrei spurning í seinni hálfleik hvernig þessi leikur fari
Óskar Smári: Í dag fannst mér við gefa ódýr mörk
Jói talar um leiksýningu hjá dómurunum - „Greinilega mjög hræddir við það umtal"
banner
   lau 16. september 2017 16:56
Kristófer Jónsson
Palli Gísla: Ekkert búinn að pæla í næsta sumri
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Páll Viðar Gíslason, þjálfari Magna, fann fyrir súrsætri tilfinningu eftir 3-1 tap gegn Vestra á Grenivíkurvelli í dag. Þar sem að Víðir tapaði gegn Aftureldingu á sama tíma eru Magni búnir að tryggja sér upp í Inkasso-deildina að ári.

„Tilfinningin er fín núna, en hún var ekki góð í leikslok með spilamennsku okkar. Markmiðinu er auðvitað náð og við gleðjumst yfir því."

Eins og áður sagði tapaði Magni leiknum í dag 3-1 og voru þeir alls ekki sannfærandi gegn sterku liði Vestra í dag.

„Við vorum bara ekki nógu gíraðir og lákum inn ódýrum mörkum inn. Mörk breyta leikjum og þeir áttu þetta bara skilið. En ég reyni bara að brosa í gegnum tárin."

Einn leikur er eftir af mótinu en þá mætir Magni liði Víðis sem hafa verið í baráttu við þá í sumar. Aðspurður um framhaldið sagðist Palli ekkert hafa hugsað útí það.

„Ég er ekkert búinn að pæla í næsta sumri. Við leyfum bara Magnamönnum að gleðjast eitthvað fram að áramótum og svo sjáum við bara hvað gerist." sagði Palli að lokum.
Athugasemdir
banner
banner