„Ég er ánægður með að framtíð mín sé ráðin. Ég er hjá stærsta félagi á Íslandi núna," sagði Michael Præst við Fótbolta.net eftir að hann skrifaði undir hjá KR í dag.
„Ég fundaði með umboðsmanni mínum í gær og hann sagði mér af áhuga hér. Þegar báðir aðilar hafa áhuga þá er ekki erfitt að ná samkomulagi. Þetta er áskorun sem ég er spenntur fyrir."
„Ég fundaði með umboðsmanni mínum í gær og hann sagði mér af áhuga hér. Þegar báðir aðilar hafa áhuga þá er ekki erfitt að ná samkomulagi. Þetta er áskorun sem ég er spenntur fyrir."
Præst hefur verið undanfarin þrjú ár hjá Stjörnunni en samningur hans í Garðabænum var að renna út.
„Það var tilfinningaþrungið þegar ég sagði þeim og auðvitað það var erfitt. Ég átti þrjú bestu ferilsins þar og það er besta ákvörðun sem ég hef tekið að koma til Íslands. Ég vona að þeir skilji ákvörðun mína núna."
Præst íhugaði að fara út. „Við fjölskyldan ræddum það að fara aftur til Danmerkur eða Svíþjóðar eða Noregs. Það var áhugi þar í fyrra áður en ég sleit krossband. Þegar stærsta félag landsins vill tala við þig þá sýnir þú þeim virðingu og hlustar á hvað þeir hafa að segja. Þetta passar vel."
Henrik Bödker er í þjálfarateymi KR en hann fékk Præst til Stjörnunnar á sínum tima. „Hann er stór hluti af því að ég ákvað að velja KR. Við eigum í góðu sambandi og þegar hann sagði mér að þetta væri félag sem passaði fyrir mig þá hlustaði ég á hann."
Þegar Præst var spurður út í það hvort að KR muni vinna titil á næsta ári þá greip hann í íslenskuna. „Já, staðfest," sagði Daninn og brosti.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















