Watford 3 - 1 Wrexham
1-0 Marc Bola ('18 )
2-0 Edo Kayembe ('38 )
2-1 Max Cleworth ('49 )
3-1 Edoardo Bove ('90 )
1-0 Marc Bola ('18 )
2-0 Edo Kayembe ('38 )
2-1 Max Cleworth ('49 )
3-1 Edoardo Bove ('90 )
Watford vann sterkan sigur á Wrexham í Championship deildinni í kvöld.
Marc Bola kom Watford yfir og Edo Kayembe bætti öðru markinu við undir lok fyrri hálfleiks. Max Cleworth kom Wrexham inn í leikinn snemma í seinni hálfleik.
Edoardo Bove gekk til liðs við Watford frá Roma í janúar. Hann hneig niður í leik með Fiorentina þar sem hann var á láni árið 2024. Hann gekkst undir aðgerð þar sem var græddur í hann gangráður.
Leikmenn mega ekki spila með gangráð á Ítalíu og hann yfirgaf því Roma og gekk til liðs við Watford. Hann kom inn á sem varamaður í kvöld og skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið í sínum sjötta deildarleik og innsiglaði sigurinn.
Wrexham er í 6. sæti með 60 stig en það er síðasta sætið sem gefur umspilssæti. Watford er í 9. sæti með 55 stig.
Athugasemdir



