Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 23:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Eze skoraði glæsilegt mark - „Þess vegna er hann hér"
Mynd: EPA
Arsenal er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 2-0 sigur á Leverkusen á Emirates vellinum í kvöld. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Eberechi Eze kom Arsenal yfir með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn og Declan Rice innsiglaði sigurinn.

MIkel Arteta hrósaði Eze í hástert eftir leikinn.

„Þegar maður talar um tækni og þegar maður talar um að ná snertingu við boltann á þennan hátt, það heyrðist bara „búff“ í boltanum. Ég sé bara viðbrögð allra leikmannanna í kringum hann, og já, þess vegna er hann hér," sagði Arteta.
Athugasemdir
banner
banner