Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 23:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikarinn: Skoraði fernu í sigri Álftanes - Dramatík í sigri Hvíta riddarans
Hvíti riddarinn er kominn áfram
Hvíti riddarinn er kominn áfram
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Fjórum leikjum er lokið í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins en Úlfarnir og Grótta höfðu tryggt sig áfram úr fyrstu tveimur viðureignunum.

Tveir leikir fóru fram í kvöld en Álftanes komst áfram eftir öruggan sigur á Kríu en Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur af mörkum Álftanes.

Þá vann Hvíti riddarinn dramatískan sigur á KH. KH komst yfir en Hilmar Þór Sólbergsson jafnaði metin og Patrekur Orri Guðjónsson tryggði Hvíta riddaranum sigur með marki í blálokin.

Hvíti riddarinn mætir Njarðvík í næstu umferð og Álftanes mætir SR eða Kára.

Álftanes 5 - 2 Kría
1-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('1 )
2-0 Hlynur Bjarnason ('26 )
3-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('30 )
4-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('41 )
4-1 Tómas Helgi Snorrason ('52 )
4-2 Tómas Helgi Sorrason ('54 )
5-2 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('82 )

KH 1 - 2 Hvíti riddarinn
1-0 Kristinn Kári Sigurðarson ('31 )
1-1 Hilmar Þór Sólbergsson ('45 )
1-2 Patrekur Orri Guðjónsson ('90 )
Athugasemdir
banner
banner