Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 22:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vinicius Junior átti síðasta orðið - „Voru að gera grín að mér"
Mynd: EPA
Real Madrid er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 2-1 sigur á Man City í seinni leik liðanna í kvöld. Liðið var í ansi góðri stöðu eftir 3-0 sigur í fyrri leiknum.

Real Madrid hefur verið í vandræðum á tímabilinu en hefur spilað vel undanfarið undir stjórn Alvaro Arbeloa. Vinicius Junior skoraði bæði mörk liðsins í kvöld.

„Við höfum vaxið sem lið. Tvær frábærar frammistöður gegn Man City. Við erum að spila betur en áður," sagði Vinicius.

Það vakti athygli að Vinicius fagnaði fyrra markinu fyrir framan stuðningsmenn City. Hann var með látbragð eins og hann væri að gráta.

„Þeir voru að gera grín að mér og segja að ég hafi grátið út af Ballon d'Or síðast þegar ég kom til Manchester. Þetta var leið til að sanna mig fyrir stuðningsmönnum Man City," sagði Vinicius.

Þarna er hann að vitna í það þegar Rodri vann Ballon d'Or árið 2024 en það var mikið ósætti í herbúðum Real Madrid þar sem þeir töldu að Vinicius ætti að vinna verðlaunin og enginn frá félaginu mætti á athöfnina.


Athugasemdir
banner
banner