Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
Arnar fer yfir valið - „Ekki á hverjum degi sem maður mæti Messi og félögum“
Ísland í dag - Sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins hefjast
Gylfi sáttur með sigurinn: „Þessi seinni hálfleikur var mjög langur"
Jói hrósaði nýliðunum: Þær tóku fyrri hálfleikinn bara í nefið
Einar Guðna: Vindurinn tók boltann bara til baka
Anton Ingi pirraður: Við verðum að hafa kassann út í 90 mínútur
Matti Guðmunds svekktur: Lögðum líf og sál í þetta en fótboltinn er brútal
Margrét Brynja orðlaus: Gáfum allt í þetta og getum gengið stoltar af velli
Hrafnhildur Ása: Búin að bíða eftir stærra hlutverki og mitt að grípa það
Jón Óli: Þurfum að finna einhvern til að nudda á henni rassgatið
Alli Jói: Markmiðið er að berjast um hærra á töflunni
Linta hefur ekki áhyggjur - „Ekki í mínum höndum"
Valdimar færði KA ró - „Hefði viljað sjá okkur vera aðeins stærri"
Grímsi ósáttur með spilamennskuna - „Ætlum að halda okkur í topp sex"
Óskar Smári: Súrt tap og eigum hálfklárað verkefni fyrir norðan
Guðni eftir útisigur: „Algjört skólabókadæmi um að nýta breidd“
Guðný: Held það hafi enginn gert ráð fyrir þessu
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
   fös 17. apríl 2026 21:01
Alexander Tonini
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Lúkas Logi að fagna jöfnunarmarkinu gegn ÍBV. Einstaklega vel afgreitt í þokkabót.
Lúkas Logi að fagna jöfnunarmarkinu gegn ÍBV. Einstaklega vel afgreitt í þokkabót.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsmenn unnu sinn fyrsta alvöru sigur í kvöld þegar liðið lagði ÍBV 2-1 á Hlíðarenda í dag. Lúkas Logi var maður leiksins og lék á alls oddi á miðjunni. En hvernig leið honum eftir leik?

„Mér líður bara mjög vel og flott að koma þremur stigum í hús og við þurfum að byggja ofan á þetta."

Hvernig fannst honum frammistaða liðsins?

„Heilt yfir bara jákvætt, vinnum sem lið og klárum leikinn saman og tökum þrjú stig með okkur heim."

Lestu um leikinn: Valur 2 -  1 ÍBV

Hvernig upplifði Lúkas Logi eigin frammistöðu í leiknum?

„Upp og niður og þetta var mest megnis liðsframmistaða. Mér fannst allir góðir í dag. Allir að hjálpast að og tala mikið saman, jákvæðni og við siglum þessu allir saman heim."

Jöfnunarmarkið sem Lúkas Logi skoraði í kvöld var einstaklega vel gert þegar hann fær boltann inni í teig og með tvo varnarmenn ÍBV að vakta hann. Þrátt fyrir það tekst honum að gabba þá báða sem og Marcel Zapytowski í markinu.

„Ég tek snertinguna og ég sé að þeir eru mjög ákveðnir að koma á mig og þá tek ég boltann framhjá þeim. Ég geri þetta mikið á æfingum og þá tek ég þetta bara í klofið á manninum sem er næst manni."

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner