Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 09:05
Fótbolti.net
Maðurinn með lyklana hjá Val - „Ætlum að breyta þessu frá grunni“
Gareth Owen, tæknilegur ráðgjafi Vals.
Gareth Owen, tæknilegur ráðgjafi Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ný stefna Vals í fótboltanum hefur verið mikið til umræðu síðustu mánuði.
Ný stefna Vals í fótboltanum hefur verið mikið til umræðu síðustu mánuði.
Mynd: Valur
Frá stuðningsmannakvöldi Vals.
Frá stuðningsmannakvöldi Vals.
Mynd: Valur
Hermann Hreiðarsson, þjálfari karlaliðs Vals.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari karlaliðs Vals.
Mynd: Valur
Kvennalið Vals fagnar marki.
Kvennalið Vals fagnar marki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frá bikarleik Vals gegn KR.
Frá bikarleik Vals gegn KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Matthías Guðmundsson, þjálfari kvennaliðs Vals.
Matthías Guðmundsson, þjálfari kvennaliðs Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Valur
Mynd: Valur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ný stefna Vals í fótboltanum hefur verið mikið til umræðu síðustu mánuði. Fólk hefur skoðanir, og þær eru margar. Óvæntar ákvarðanir hafa verið teknar og umræðan um félagið verið á frekar neikvæðum nótum.

Ljóst er að félagið ætlar sér að fara nýjar leiðir og maðurinn sem á að leiða þá vegferð er þrítugur Walesverji sem lítið hefur heyrst í síðan hann hóf störf.

Gareth Owen var ráðinn tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar Vals síðasta haust, yfirmaður fótboltamála.

Hann hefur starfað hjá félögum á borð við Chelsea og Knattspyrnusamband Wales, auk þess að hafa leikið með unglingaliðum Swansea og Sheffield United á yngri árum. Hann hefur búið hér á landi síðustu ár, á íslenska kærustu og þekkir íslenska fótboltann afar vel eftir störf hjá bæði Gróttu og Fram.

En hvernig stendur á því að þessi ungi Walsverji er kominn með lyklana að einu sigursælasta félagsliði landsins?

Mikil samstaða um hvert við viljum fara
„Sýn stjórnarinnar var mjög skýr þegar við ræddum saman og það var mikill samhljómur með þeirra hugmyndum og hvernig ég horfi á fótbolta. Ég hef verið hér í nokkur ár og þekki íslenska fótboltann vel. Valur er auðvitað risa stórt félag með mikla sögu og það er mikill heiður að mér sé treyst fyrir þessu starfi," segir Gareth Owen.

Hann segir fyrsta verkefnið hafa verið að setja saman öflug þjálfarateymi fyrir báða meistaraflokka félagsins og það hafi farið mikil vinna í það.

„Það var farið í nokkuð ítarlegt ráðningarferli og við enduðum á að gera mjög miklar breytingar karlamegin og fengum einnig inn nýja aðila kvennamegin. Ég er gríðarlega ánægður með bæði þjálfarateymin okkar sem ég tel vera lykilinn að því að við getum gert það sem þarf að gera. Ég hef mikla trú á báðum þjálfarateymum, þau hafa alla getu til að gera framúrskarandi hluti hjá Val.“

Meiðslastaðan hefur mótað veturinn
„Við verðum líka að horfa á stóru myndina. Meiðslin hjá okkur í vetur hafa verið óvenju mikil og að einhverju leyti afleiðing af síðasta tímabili sem var þungt og erfitt. Það var mikið keyrt á sama mannskapnum og það hefur setið í mönnum.“

„Svo höfum við líka lent í því að leikmenn sem áttu að vera komnir til baka þurftu að fara aftur í aðgerðir og það setur auðvitað strik í reikninginn hjá okkur. Við hefðum viljað hafa fleiri klára í upphafi móts en þetta er staðan og við höfum þurft að vinna með hana. Þetta eru ekki afsakanir heldur einfaldlega staðreyndir sem við þurfum að takast á við.“


„Sýnin er skýr – en þetta tekur tíma“
Þegar hann er spurður út í stóru myndina og hvað það sé sem hann ætli að gera segir Gareth:

„Þegar ég horfi á Val í dag er sýnin skýr. Við erum að byggja upp félag sem getur keppt á hæsta stigi en á sama tíma skapað greiða leið fyrir unga leikmenn að komast upp í meistaraflokk og ná árangri þar. Í grunninn snýst þetta um að byggja upp sjálfbært umhverfi þar sem við erum að berjast um titla, en jafnframt að þróa leikmenn sem geta vaxið, spilað fyrir félagið á hæsta stigi og í kjölfarið farið áfram í stærri verkefni erlendis. Við verðum alltaf dæmd af úrslitum í Val og þetta mun taka tíma. Hafandi sagt það þá hafa leikmannahópar okkar alla burði til að berjast á toppnum þetta tímabil.“

„Next Gen“ prógrammið – brúin upp í meistaraflokk
Gareth segir stærsta hluta breytinganna snúa að yngri leikmönnum.

„Við erum í raun að breyta nálguninni okkar þannig að við setjum raunverulegt traust á unga leikmenn. Það er knúið áfram af verkefni sem við köllum „Next Gen“ sem leggur grunninn að okkar metnaði um að keppa á hæsta stigi.“

„Next Gen“ er verkefni sem er hannað sem brú milli yngri flokka og meistaraflokks að sögn Gareth. Leiðin sé gerð skýr – úr yngri flokkum, í sérhæft þróunarumhverfi og þaðan áfram í meistaraflokk, lán eða jafnvel út fyrir landsteinana.

En þetta snýst um meira en bara fótbolta. „Við viljum undirbúa leikmenn, ekki bara til að standa sig inni á vellinum, heldur líka í lífinu utan hans.“

Í verkefninu sé unnið markvisst með þætti eins og einstaklingsmiðaða þjálfun, styrktar- og líkamlega þróun, íþróttasálfræði og næringu. Markmiðið með þessu sé skýrt. Að uppaldir leikmenn Vals verði lykilmenn í meistaraflokki, landsliðum og síðar erlendis.

„Á meðan ég er hjá félaginu mun þessi stefna ekki breytast – allt sem við gerum er hugsað til lengri tíma. Félagið þarf að vera í betri stöðu þegar ég fer en þegar ég kom hvað þetta varðar.“

Ungir leikmenn fá stærra hlutverk
„Við höfum líka séð þetta í vetur. Við höfum gefið ungum leikmönnum stærra hlutverk, bæði vegna aðstæðna en líka vegna þess að við viljum það. Strákar eins og Dagur Orri, Ingimar Stöle og Kristófer Dagur hafa fengið mikla ábyrgð og aðrir ungir leikmenn hafa fengið sjénsa og gripið þá.“

„Það skiptir okkur máli að leikmenn fái að máta sig á stóra sviðinu. En við verðum líka að vera heiðarlegir með það að þeir eru ekki bara að fá tækifæri af því að þeir eigi það skilið – heldur líka vegna þess að við höfum verið með lykilmenn frá.“


Ánægður með gagnrýnina
Nýlega vakti Fótbolti.net athygli á því að enginn uppalinn leikmaður Vals hefði verið í byrjunarliðinu gegn Þór Akureyri í fyrsta leik í Íslandsmóti. Hvað finnst honum um þá staðreynd. „Ef ég er alveg hreinskilinn þá var ég mjög ánægður með þessa grein. Hún varpaði ljósi á mjög augljóst vandamál sem hefur fengið að viðgangast í Val í alltof mörg ár. Við erum að breyta nákvæmlega þessu, alveg frá grunni, en það tekur tíma.“

En hvað með þjálfara meistaraflokka félagsins eru þeir sáttir með þessar nýju áherslur og er krafa á þá að spila ungum leikmönnum?

„Þetta er ekki þannig að ég segi þjálfurum hverjir eigi að spila. Þetta snýst um sameiginlega menningu og skilning. Menn eru að taka þátt í ákveðinni stefnu og eru með ákveðin hlutverk þar sem þeirra styrkleikar nýtast. Bæði Matthías og Hermann eru miklir fótboltaheilar og það er sameiginlegur skilningur á því að þetta þurfi að breytast til þess að félagið verði sjálfbært til lengri tíma.“

En hvað með unga leikmenn, verða þeir að spila ungum? „Ef ungur leikmaður sýnir gæði, vinnusemi og metnað á æfingum, þá fær hann tækifæri. Eigum við ekki að segja að þröskuldurinn fyrir því sé lægri en oft áður.“

„Galáctico“ leiðin ekki virkað
Það hefur vakið athygli hversu rólegir Valsmenn hafa verið á leikmannamarkaðnum miðað við oft áður. Margir stórir bitar hafa farið í önnur félög á meðan yngri leikmenn og kannski minni nöfn hafa farið í Val. Er enginn metnaður lengur?

„Það er ekki rétt. Í mínum huga er þetta einmitt merki um að metnaðurinn hjá Val hafi aukist, við erum enn Valur. En við teljum að besta leiðin til árangurs sé að fá leikmenn sem passa inn í okkar hugmyndafræði á sama tíma og við þróum okkar eigin. „Galáctico-leiðin hefur ekki virkað síðustu ár og það er kominn tími til að prófa eitthvað nýtt.“

Gareth segir ennfremur að þeir leikmenn sem hafi bæst við karlamegin hafi ákveðna hæfni og karakter ásamt metnaði til að bæta sig og ná árangri, þetta eru hlutir sem skipti öllu máli.

„Dagur Orri er sem dæmi 20 ára og skorar í sínum fyrsta leik í efstu deild. Ingimar Stöle er rétt skriðinn yfir tvítugt. Kristófer Dagur er strákur sem býr yfir mikilli vinnusemi og hefur alla möguleika til að vera mikilvægur fyrir félagið í framtíðinni. Einnig heillaði Myles Veldman þjálfarateymið og er hann staðráðinn í að ná árangri. Auðvitað hefðum við viljað fá fleiri leikmenn inn en á sama tíma er það eins með þetta og annað, það gengur ekki allt upp sem þú vilt, en við sjáum hvort við getum ekki bætt hópinn okkar enn frekar áður en glugginn lokar.“

Aldrei talað við Jóa Berg
Er rétt að þið hafið boðið Jóhanni Berg Guðmundssyni samning og laun upp á 2 milljónir líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum?

„Nei það er ekki rétt. Við höfum aldrei talað við Jóhann Berg sem er auðvitað frábær leikmaður en ekki það sem við erum að leita að núna. Það er margt sem er sagt og skrifað sem er algjört bull. Þetta er eitt af því.“

Ætlum ekki að bakka með þetta
En hvað ef úrslitin láta á sér standa? Heldur Gareth að svo stórt félag eins og Valur hafi einhverja þolinmæði fyrir því að vera ekki stærstir, mestir og bestir?

„Það verður auðvitað bara að koma í ljós. Stjórn deildarinnar er mjög skýr á því að þetta sé leið sem sé nauðsynlegt að fara bæði til þess að ná ákveðnum tökum á fjárhag félagsins en líka til þess sýna ungum leikmönnum að það sé þess virði að vera í Val. Félagið er ekkert annað en krakkarnir sem stunda sína íþrótt, fólkið sem þykir vænt um félagið sitt og vill því allt hið besta. Það er algengt að brugðist sé við mótlæti með skammtímalausnum í stað þess að hugsa til lengri tíma. Við ætlum að hverfa frá því.“

Þannig að Valsmenn væru bara sáttir með að falla niður um deild?

„Við skulum nú ekki fara fram úr okkur. Við erum með þannig hóp karlamegin að við eigum að geta gert góða hluti þetta tímabil en það er mikilvægt að hafa í huga að allt sem við erum að gera gengur út á að ná upp stöðugleika og byggja upp stöðugan árangur til lengri tíma.“

„Þú mátt setja þetta í fyrirsögn“
En hver eru þá markmiðin?

„Við höfum sammælst um að við viljum vinna deildina í síðasta lagi á næstu þremur til fjórum árum og þú mátt alveg hafa það sem fyrirsögn. Valur er stærsta félag landsins að mínu mati og við viljum byggja lið sem vinnur þetta á „Valsháttinn“. Hafandi sagt það þá trúi ég því innilega að það geti gerst fyrr.“

Það hefur komið fram að Valur hafi unnið nokkuð með sænska ráðgjafarfyrirtækinu GoalUnit við mótun nýrrar stefnu. Margir málsmetandi aðilar í íslenskum fótbolta gefa lítið fyrir þá hugmyndafræði sem er mjög gagnadrifin. Skilur Gareth þessa gagnrýni?

„Ég skil þessa gagnrýni vel og í fullri hreinskilni, ef félag myndi nota GoalUnit sem eina ákvörðunartæki sitt, þá hefðu gagnrýnendur rétt fyrir sér. Fótbolti er ekki spilaður á excel-skjali og reiknirit getur ekki mælt leiðtogahæfni, karakter eða hvernig leikmenn bregðast við pressu.“

En hann segir hitt ekki síður mikilvægt. „Að hunsa svona verkfæri er einfaldlega ófaglegt. Við erum ekki að nota þetta til að stjórna liðinu eða sem réttlætingu á öllum okkar ákvörðunum. Ég horfi fyrst og fremst á þetta sem leiðarljós í því sem við erum að gera. Þetta snýst um sjálfbærni og að tryggja að við tökum betri ákvarðanir til lengri tíma.“

Draumur að klæðast en martröð að spila gegn
En hvað segir Gareth um stuðningsmenn Vals. Skilur hann þá sem eru áhyggjufullir?

„Ég held að allir stuðningsmenn Vals vilji lið sem er spennandi, hungrað og gefur allt í verkefnið. Ég hef átt ótal mörg samtöl við Valsfólk síðustu vikur og mánuði og ég upplifi ekkert annað en eftirvæntingu og forvitni þegar ég ræði framtíðina. Valur á mikla og merka sögu en fyrir okkur sem erum að starfa í félaginu í dag þá þurfum við fyrst og fremst að horfa til framtíðar og taka ákvarðanir sem byggja undir þá framtíð sem við viljum félaginu.“

Fyrir honum snúist þetta um þrjá hluti sem hann hafi dregið saman á stuðningsmannakvöldi knattspyrnudeildar á dögunum.

„Valstreyjan á að vera eitthvað sem fólki dreymir um að klæðast en er martröð að mæta. Okkur langar að keppa um titla á hverju ári og fara í alla leiki til þess að vinna. Síðan viljum við spila sóknarbolta sem vinnur leiki og stilla upp vörn sem vinnur titla. Þetta gætir hljómað eitthvað barnslegt og einfalt fyrir fólki en fótbolti er ekkert svakalega flókin íþrótt. Valur ætlar ekki lengur að kaupa lausnir, Valur ætlar að byggja þær," segir Gareth Owen.
Slapp
banner