Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   mið 18. febrúar 2026 21:22
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Dýrmætur sigur fyrir Villarreal
Mynd: EPA
Levante 0 - 1 Villarreal
0-1 Georges Mikautadze ('57 )

Georgíumaðurinn Georges Mikautadze skoraði eina mark leiksins er Villarreal nældi sér í dýrmæt stig í meistaradeildarbaráttunni.

Fallbaráttulið Levante fékk sín færi á heimavelli en gestirnir frá Villarreal voru sterkari aðilinn og verðskulduðu sigurinn.

Mikautadze skoraði á 57. mínútu eftir frábæra sendingu innfyrir vörnina frá Pape Gueye. Mikautadze og Nicolas Pépé, fyrrum kantmaður Arsenal, spiluðu boltanum yfirvegað á milli sín áður en Mikautadze kláraði með marki.

Þetta reyndist eina mark leiksins og er Villarreal í þriðja sæti eftir slakt gengi síðustu vikna. Liðið er með 48 stig, sjö stigum fyrir ofan Real Betis sem situr í fimmta sætinu.
Athugasemdir
banner