Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Flick: Cubarsí er á sama gæðastigi og Yamal
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Hansi Flick þjálfari Barcelona svaraði spurningum á fréttamannafundi í gær fyrir leik liðsins gegn Newcastle í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Barcelona heimsækir Newcastle í kvöld og svaraði Flick ýmsum spurningum.

„Enska úrvalsdeildin er besta deild í heimi, hún er ótrúlega gæðamikil. Það er rosalega mikill peningur í deildinni og félög þar hafa rosaleg tækifæri til að stækka. Við erum samt alveg jafn góðir og ensku liðin og það er mikilvægt að við spilum okkar leik," sagði Flick.

„Við viljum sýna heiminum hvernig fótbolta Barcelona spilar. Við viljum sýna fólki leikstílinn okkar."

Flick hefur fengið mikið hrós fyrir að gefa ungum og uppöldum leikmönnum mikinn spiltíma.

„Hvernig get ég annað.. þeir eru rosalega gæðamiklir. Pau Cubarsí, Lamine (Yamal), Fermín (López), (Marc) Bernal. Að mínu mati er Cubarsí á sama gæðastigi og Lamine Yamal, nema bara sem varnarmaður.

„Hann er ótrúlega góður í vörn og kemur með mikilvægt framlag í sóknarleiknum. Hann getur tekið innköst sem eru eins og hornspyrnur, hann er bara 19 ára gamall og er að standa sig vel á hæsta gæðastigi fótboltaheimsins.

„Lítið bara á frammistöðuna þeirra í leiknum í Bilbao... peyjarnir voru ótrúlegir."


   09.03.2026 21:27
Flick um rifrildin: Ég þekki sannleikann

Athugasemdir
banner