Brasilíski kantmaðurinn Alisson Santos hefur byrjað af miklum krafti undir stjórn Antonio Conte hjá Ítalíumeisturum Napoli.
Alisson kom úr röðum Sporting í Portúgal á lánssamningi með kaupákvæði þar sem hann var ekki inni í myndinni hjá Rui Borges þjálfara.
Alisson hefur verið líflegur á kantinum hjá Napoli sem er að glíma við meiðslavandræði í framlínunni. Hann er kominn með tvö mörk í fimm leikjum frá félagaskiptunum í byrjun febrúar og þykja góðar líkur á að Napoli festi kaup á honum næsta sumar ef hann heldur uppteknum hætti.
Fabrizio Romano greinir frá því að kaupákvæðið hljóðar aðeins upp á 15 milljónir evra, upphæð sem Napoli getur hæglega borgað.
Ítalska stórveldið ætlar þó að bíða þar til seinna í vor með að taka ákvörðun.
Athugasemdir

