Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Guðlaugur Victor skoraði í Íslendingaslag
Mynd: Horsens
Mynd: Lyngby
Það komu aðeins tveir Íslendingar við sögu í leikjum kvöldsins víða um Evrópu þegar Guðlaugur Victor Pálsson og Ísak Snær Þorvaldsson mættust í næstefstu deild danska boltans.

Guðlaugur Victor var í byrjunarliði Horsens og skoraði fyrsta mark leiksins á þriðju mínútu, en gestirnir í liði Lyngby tóku öll völd á vellinum eftir það.

Ísak Snær var í byrjunarliði Lyngby og lék fyrstu 83 mínúturnar í góðum endurkomusigri. Lokatölur urðu 1-3 og trónir Lyngby á toppi deildarinnar með þriggja stiga forystu á næstu lið.

Þetta var annar tapleikurinn í röð hjá Horsens, sem er um miðja deild - níu stigum á eftir Lyngby.

Ólafur Guðmundsson og Davíð Snær Jóhannsson voru þá ónotaðir varamenn er Álasund tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum norska bikarsins.

Aalesund vann á útivelli gegn Egersund eftir að hafa lent undir í tvígang. Íslendingaliðið snéri stöðunni sér í hag með tveimur mörkum á lokakaflanum.

Horsens 1 - 3 Lyngby
1-0 Guðlaugur Victor Pálsson ('3)
1-1 N. Pierre ('35)
1-2 A. Bondergaard ('40)
1-3 N. Pierre ('59)

Egersund 2 - 3 Aalesund
1-0 O. Kapskarmo ('8)
1-1 K. Lonebu ('21, víti)
2-1 S. Vatne ('70)
2-2 E. Myrlid ('81)
2-3 I. Djantou ('85)
Athugasemdir
banner