Logi Tómasson átti góðan leik með liði sínu Samsunspor þegar liðið mætti stórliðinu Fenerbahce á útivelli um helgina. Fyrir frammistöðu sína er hann í liði umferðarinnar hjá beIN SPORTS sem nýtir sér gögn frá Opta þegar valið er í liðið.
Vinstri bakvörðurinn lagði upp mark í leiknum en Fenerbahce tók öll stigin, 3-2 urðu lokatölur. Logi lagði upp mark fyrir Marius á 23. mínútu sem kom Samsunspor í 1-2 í leiknum.
Vinstri bakvörðurinn lagði upp mark í leiknum en Fenerbahce tók öll stigin, 3-2 urðu lokatölur. Logi lagði upp mark fyrir Marius á 23. mínútu sem kom Samsunspor í 1-2 í leiknum.
Landsliðsmaðurinn hefur heilt yfir átt gott fyrsta tímabil í Tyrklandi eftir að hafa verið keyptur frá Strömsgodset síðasta sumar. Þetta var þriðja stoðsendingin hans í deildinni í vetur. Logi er aftur kominn í lykilhlutverk eftir að mínútunum fækkaði aðeins um miðbik janúar.
Þetta er í fjórða skiptið í vetur sem Logi er valinn í lið vikunnar. Þeir Matteo Guendouzi (Fenerbahce) og Victor Osimhen (Galatasaray) eru einnig í liði umferðarinnar.
Samsunspor er í 8. sæti tyrknesku deildarinnar þegar níu umferðir eru eftir. Framundan hjá Samsunspor er einvígi gegn Rayo Vallecano í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar.
Athugasemdir

