Diego Simeone þjálfari Atlético Madrid svaraði spurningum á fréttamannafundi fyrir leik liðsins gegn Tottenham Hotspur í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Tottenham hefur átt hörmulegu gengi að fagna í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu þrátt fyrir að vera með mikið af gæðaleikmönnum innanborðs.
Simeone var því spurður hvort Atlético væri ekki sigurstranglegra liðið fyrir heimaleikinn gegn Tottenham, sem fer fram annað kvöld.
„Af hverju erum við sigurstranglegri? Útaf því að þeim gengur illa í deildinni? Ég get lofað ykkur því að þegar þú stígur á völlinn þá manstu ekki í hvaða sæti þú ert í deildinni. Öll einbeitingin fer í leikinn, ég þekki ekki neinn fótboltamann sem hugsar um stöðutöfluna áður en hann skýtur boltanum," sagði Simeone.
„Þar að auki þá endaði Tottenham í fjórða sæti í deildarkeppni Meistaradeildarinnar á meðan við þurftum að fara í gegnum umspilið. Við getum ekki talist sigurstranglegri.
„Ensk lið eru mjög hröð og það er alltaf erfitt að spila á móti þeim. Enski boltinn er hraðari heldur en annars staðar í Evrópu og ég veit ekki alveg af hverju, en það er augljóst."
Conor Gallagher verður í leikmannahópi Tottenham og mætir því fyrrum liðsfélögum sínum í Atlético aðeins tveimur mánuðum eftir félagaskiptin. Gallagher var í Madríd í eitt og hálft ár og borgaði Tottenham 35 milljónir punda til að kaupa hann aftur í enska boltann.
„Conor er ungur leikmaður sem lagði mikinn metnað í allt sem hann gerði á dvöl sinni hérna. Hann er gæðamikill leikmaður sem getur skapað mikla hættu með hlaupum sínum frá miðjunni. Hann hagaði sér alltaf vel hjá Atlético og við berum virðingu fyrir honum."
Athugasemdir


