Callum Wilson hefur samþykkt nýjan samning við West Ham, Ibrahim Sangare hefur bæst við óskalista Manchester United og Manchester City nálgast kaup á Tino Livramento.
Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins, það er BBC sem tekur saman og er í boði Powerade.
Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins, það er BBC sem tekur saman og er í boði Powerade.
Enski framherjinn Callum Wilson (34) hefur samþykkt nýjan eins árs samning við West Ham. Það eru óvænt tíðindi því á meðan félagaskiptaglugginn var opinn leit út fyrir að hann færi frá félaginu. (Telegraph)
Manchester United hefur bætt Ibrahim Sangare (28) miðjumanni Nottingham Forest á óskalistann fyrir sumarið. (CaughtOffside)
Manchester City nálgast kaup á Tino Livramento (23) bakverði Newcastle. (Football Insider)
Newcastle hefur mikinn áhuga á Marcus Tavernier (26) miðjumanni Bournemouth. (Teamtalk)
Njósnarar Real Madrid fylgdust með Sandro Tonali (25) miðjumanni Newcastle gegn Manchester á laugardag. (Sun)
Andy Robertson (31) segir að samtöl um hans framtíð hjá Liverpool verði ekki rædd opinberlega. Hann verður samningslaus í sumar. (Athletic)
Arsenal leiðir baráttuna um Leon Goretzka (31) miðjumann Bayern. (Christian Falk)
Vængmaðurinn Julian Brandt (29) fer á frjálsri sölu frá Dortmund í sumar. (Sky Sports)
RB Leipzig hefur náð samkomulagi Rocco Reitz (23) varnarsinnaðan miðjumann Gladbach. Félögin ræða nú saman sín á milli. (Florian Plettenberg)
Athugasemdir

