Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 11:05
Kári Snorrason
Heimild: RÚV 
Sævar hefði getað verið í lífshættu - „Alltaf verið að negla mann niður aftur og aftur“
Sævar meiddist gegn Frakklandi í október.
Sævar meiddist gegn Frakklandi í október.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sævar er lykilmaður í Íslendingaliði Brann.
Sævar er lykilmaður í Íslendingaliði Brann.
Mynd: EPA
Á að baki 9 landsleiki.
Á að baki 9 landsleiki.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sævar Atli Magnússon, leikmaður Brann og íslenska landsliðsins, hefur ekki spilað síðan hann meiddist í fræknu jafntefli Íslands gegn Frakklandi á Laugardalsvelli í október.

Sævar reif liðþófa í hné og varð strax ljóst að hann yrði frá í einhverja mánuði. Eftir að hafa gengist undir aðgerð lenti hann í miklum hrakförum. Hann fékk sýkingu í hnéð í aðgerðinni og þurfti að fara í tvær til viðbótar. Hann var tíu daga á sjúkrahúsi og var svo rúmliggjandi í mánuð.

Sævar ræddi við Ríkisútvarpið um bataferlið.

Hefði getað verið í lífshættu
Sævar segir að meðan hann var í endurhæfingaferlinu á Íslandi hafi hann veikst, fengið hita og svitaköst og að lokum leitað til læknis. Þar hafi komið í ljós að hann væri með blóðsýkingu í liðnum eftir aðgerðina og að sýkingargildin hefðu verið svo há að þau hefðu ekki getað mælst hærri.

„Mér skilst að maður geti verið í lífshættu þegar svona sýking kemur upp en mér leið þó aldrei þannig,“ segir Sævar en í kjölfarið var hann drifinn í neyðaraðgerð um nóttina og lá hann inni á spítalanum í sex daga.

Eftir aðgerðina hafi sýkingin hins vegar blossað upp á ný og þá hafi hann þurft að leggjast aftur inn á sjúkrahús í tvo daga. Í framhaldinu hafi hann verið á sýklalyfjum í æð í sex vikur.

„Það er alltaf verið að negla mann niður aftur og aftur. Endalaust bakslag í kjölfar þessara meiðsla. Ekki bara þrjár aðgerðir að baki, heldur hefur batinn verið hægur. Ég missti fimm eða sex kíló á meðan öllu þessu stóð, enda var matarlystin ekki mikil. Ég hreyfði mig ekki í einhverjar vikur og þegar maður gerir það ekki svona lengi tekur það lengri tíma að koma til baka á fullu.“

Stefnir á miðjan apríl
Í fyrstu var búist við að Sævar myndi snúa aftur til æfinga í febrúar en nú segist hann stefna að því að koma til baka um miðja apríl. Hann segir það erfitt að vera glíma við þessi meiðsli þegar hann er á hátindi ferilsins.

„Þó að ég sé á eftir áætlun þá vonast ég til að ég verði farinn að æfa á fullu um miðjan apríl. Ég er samt meðvitaður um það að það er ekkert sjálfsagt að ég verði sami leikmaður þegar ég kem til baka og ég var fyrir meiðslin. En auðvitað vonar maður það samt.“
Athugasemdir
banner