Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tekur undir fregnir um Callum Wilson
Mynd: EPA
Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano hefur tekið undir fregnir úr enskum fjölmiðlum sem segja Callum Wilson vera búinn að samþykkja framlengingu á samningi sínum hjá West Ham.

Telegraph greindi frá þessu í gær en Wilson er 34 ára gamall og ætlaði að skipta um félag eftir að West Ham keypti tvo nýja framherja í janúarglugganum.

Wilson óttaðist um að fá ekki meiri spiltíma með liðinu og vildi gera starfslokasamning við félagið. Hann hætti svo við áform sín eftir að hafa fengið loforð frá Nuno Espírito Santo þjálfara um spiltíma.

Núverandi samningur Wilson rennur út í sumar og er sagt að hann sé búinn að samþykkja eins árs framlengingu.

Wilson er búinn að skora 5 mörk og gefa eina stoðsendingu í 24 úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu. Síðasta markið hans kom um miðjan janúar og reyndist sigurmarkið á Tottenham Hotspur Stadium. Wilson var skipt inn af bekknum í uppbótartíma venjulegs leiktíma og skoraði hann skömmu síðar.
Athugasemdir
banner