Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 09:30
Kári Snorrason
Liverpool með augastað á Diaby - Pochettino á blaði hjá Real
Powerade
Moussa Diaby.
Moussa Diaby.
Mynd: EPA
Djed Spence.
Djed Spence.
Mynd: EPA
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: EPA
Juventus hefur áhuga á Djed Spence, Liverpool vill Moussa Diaby og Mauricio Pochettino er sagður á blaði hjá Real Madrid.

Þetta og margt annað í troðfullum slúðurpakka dagsins sem BBC hefur tekið saman og er í boði Powerade.

Juventus hefur áhuga á að fá enska bakvörðinn Djed Spence, (25) leikmann Tottenham, í sumar. (Gazzetta dello Sport)

Liverpool íhugar að kaupa franska kantmanninn Moussa Diaby, 26 ára leikmann Al Ittihad. Diaby, sem lék áður með Aston Villa, vill yfirgefa Sádi Arabíu í sumar. (Teamtalk)

Real Madrid hefur sett Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfara Bandaríkjanna og fyrrum stjóra Tottenham, á lista yfir mögulega þjálfara fyrir næsta tímabil. (ESPN)

Newcastle vill halda brasilíska miðjumanninum Bruno Guimaraes, 28 ára, og er í samningaviðræðum við hann þrátt fyrir áhuga Manchester United. (Caughtoffside)

Manchester United ætlar ekki að flýta sér að ráða nýjan aðalþjálfara þrátt fyrir að bráðabirgðaþjálfarinn Michael Carrick hafi styrkt stöðu sína. (The Athletic)

Enski bakvörðurinn Tino Livramento (23) er ekki nálægt því að ganga til liðs við Manchester City í sumar þrátt fyrir sögusagnir. (Fabrizio Romano)

Alexis Mac Allister, 27 ára leikmaður Liverpool, ætlar ekki í viðræður um nýjan samning við félagið í sumar en er ánægður hjá félaginu þrátt fyrir sögusagnir um að Real Madrid vilji fá hann. (Mundo Deportivo)

Napoli vill framlengja samning skoska miðjumannsins Scott McTominay, 29 ára, til ársins 2030 til að bægja frá áhuga annarra félaga í sumar. (Il Mattino)

Callum Wilson (34) leikmaður West Ham, hefur náð munnlegu samkomulagi um nýjan eins árs samning við félagið þrátt fyrir áhuga Celtic. (Sky Sports)

Manchester City er ólíklegt til að virkja ákvæði í samningi sem myndi færa 16 ára bandaríska miðjumanninn Cavan Sullivan frá Philadelphia Union til félagsins næsta tímabil. (The I)

Ryan Mason, fyrrum miðjumaður Tottenham, er talinn líklegur til að taka við sem bráðabirgðaþjálfari félagsins í stað Igor Tudor. (Football Insider)

Bayer Leverkusen mun meta stöðu þjálfarans Kasper Hjulmand í lok tímabilsins. (Florian Plettenberg)
Athugasemdir
banner
banner