Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   þri 10. mars 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Husavik.com 
Cantona leikur listir sínar á Hólmavík
Mynd: EPA
Franska fótboltagoðsögnin Eric Cantona er á Íslandi þessa dagana við tökur á kvikmyndinni Hólmavík, sem er tekin upp að hluta til á Hólmavík á Ströndum og í nágrenninu.

Ólíkt mörgum af sínum fyrrum liðsfélögum ákvað Cantona að gerast leikari eftir að fótboltaferli hans lauk, frekar en að leggja mikinn metnað í þjálfun eða stjórnun fótboltaliða. Hann þjálfaði franska landsliðið í strandfótbolta í 14 ár áður en hann reyndi fyrir sér sem yfirmaður fótboltamála hjá New York Cosmos tímabilið 2011-12.

Hann er núna viðriðinn stórt alþjóðlegt kvikmyndaverkefni með stórum hópi erlendra og íslenskra kvikmyndagerðarmanna og leikara.

„Þetta er að gerast beint fyrir utan gluggann hjá mér, í Vilja Fiskverkun þar sem ég er með skrifstofu,“ segir Hólmvíkingurinn Andri Freyr Arnarsson, tónlistarmaður og fyrrum leikmaður Völsungs, í samtali við Húsavík.com.

„Þetta er fyrsti tökudagurinn og þau verða hér sennilega í um einn og hálfan mánuð til viðbótar. Það hefur verið lokað fyrir umferð á sumum götum og það er mikil spenna í samfélaginu. Hér hefur meira að segja verið sett upp fyrsta umferðarljósið."
Athugasemdir
banner
banner